Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 02. júlí 2008 13:24
Guðmundur Dagur Ólafsson
Heimild: Sky Sports 
Aston Villa sektar Barry fyrir ummæli sín
Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa, hefur ákveðið að sekta Gareth Barry, fyrirliða liðsins, fyrir ummæli sín í News of the World um síðustu helgi.

Liverpool hefur verið á höttunum eftir Barry og sjálfur vill leikmaðurinn fara þangað. O'Neill er líka reiðubúinn að láta hann fara en aðeins fyrir rétt verð.

Í viðtalinu við News of the World gagnrýndi Barry O'Neill fyrir að vera of upptekinn við að vera aðstoðarlýsandi hjá BBC á EM 2008 og gefa sér ekki tíma í að reyna sannfæra sig að vera áfram hjá Villa.

O'Neill staðfesti að Barry hefði verið sektaður af félaginu fyrir ummæli sín og að hann myndi ekki snúa aftur til æfinga hjá félaginu á morgun eins og aðrir leikmenn

„Gareth mun ekki snúa aftur til æfinga á morgun og hann hefur verið sektaður fyrir að gefa News of the World viðtal sem við heimiluðum ekki," sagði O'Neill.

Fréttir í morgun sögðu að Liverpool hefði komið með nýtt tilboð í Barry en O'Neill segir að það sé ekki rétt og að ekkert nýtt hafi komið í ljós með málið.

„Þessar fréttir í morgun eru víðsfjarri og staðan er algjörlega óbreytt," bætti hann við.
Slapp
banner