Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 09. júlí 2008 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Myndaveisla: Þjálfarar Breiðabliks fóru í sjóinn
Leikmenn Breiðabliks stilla sér hér upp með þjálfurunum sem sitja fyrir framan þá eftir sundsprettinn.  Hægt er að sjá myndina stærri með því að smella  á hana. Neðst í fréttinni eru svo fleiri myndir.
Leikmenn Breiðabliks stilla sér hér upp með þjálfurunum sem sitja fyrir framan þá eftir sundsprettinn. Hægt er að sjá myndina stærri með því að smella á hana. Neðst í fréttinni eru svo fleiri myndir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari Landsbankadeildarliðs Breiðabliks og Guðmundur Garðar Brynjólfsson aðstoðarmaður hans þurftu að stinga sér í sjóinn í gær vegna þess að leikmenn liðsins skiluðu réttum úrslitum í síðustu þremur leikjum liðsins.

Leikirnir þrír voru 2-2 jafnteflisleikur gegn Keflavík í deildinni, 1-0 sigur á Val í VISA-bikarnum og 2-0 sigur á Fylki í Landsbankadeildinni í fyrrakvöld.

,,Við sögðum þeim að ef það kæmu rétt úrslit úr þessum þremur leikjum þá færum við í sjóinn og myndum safna yfirvaraskeggi. Ef það hefði farið á hinn veginn þá hefðu þeir þurft að fara í sjóinn," sagði ÓIafur í samtali við Fótbolta.net eftir að hafa stigið uppúr sjónum í Fossvoginum í gær.

,,Þetta var fínt, ég veit ekki hvað er búið að vera að mikla þetta hinum megin við Faxaflóann að þetta sé eitthvað rosalegt. Þetta er svalt og fínt. Ég hef gert þetta áður en ekki hérna."

,,Við gerðum þetta bara til að skapa stemmningu í hópnum. Svo tókum við hjólreiðaferð, Tour de Kópavogur, hingað í Nauthólsvíkina úr Fífunni, þetta var keppni, fjögur lið. Svo slökum við á, teyjum og förum sömu leið til baka og svo er frí á morgun."

























































Slapp
banner
banner