Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 18. júlí 2008 08:00
Magnús Már Einarsson
Fótboltinn minn: Geir H. Haarde (Forsætisráðherra)
Geir sýnir lipra takta með knöttinn fyrir utan stjórnarráðið.
Geir sýnir lipra takta með knöttinn fyrir utan stjórnarráðið.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þá er komið að liðnum fótboltinn minn þar sem þekktur einstaklingur úr þjóðfélaginu segir okkur frá fótboltaferli sínum og svarar nokkrum spurningum um fótbolta.

Geir H. Haarde forsætisráðherra Íslendinga æfði fótbolta í yngri flokkunum og fylgist með boltanum ennþá þann í dag.

Mágur hans er Guðjón Þórðarson þjálfari Skagamanna en við fengum Geir til að svara nokkrum spurningum í liðnum "Fótboltinn minn."



Hvernig var fótboltaferillinn þinn?
Hann var stuttur. Ég var eins og strákar á mínum aldri mikið í fótbolta. Ég er alinn upp í Vesturbænum og þar var fótboltavöllur beint á móti heimili mínu, þar sem nú er Vesturbæjarskóli. Maður var þar öllum stundum sem lítill strákur og síðan fór maður að æfa með KR.

Ég hætti þegar ég var þrettán ára. Ég var kominn upp í fjórða flokk C, sem gekk undir nafninu ruslið og ég hætti, ég sá ekki fram á mikla velgengni í þessu. Ég var bakvörður en þetta var allt öðruvísi, þjálfun, skipulag og allt í kringum þetta var allt öðruvísi en í dag. Þetta er tekið miklu fastari tökum með yngri flokkana í dag. Þeir sem voru að þjálfa okkur voru fimir en þeir voru með stóra hópa af strákum.

Þjálfarinn minn undir lokin var Gunnar Jónsson, afi Brynjars Björns Gunnarssonar. Hann var fínn kall og stóð sig mjög vel en hann var með mjög stóran hóp af guttum. Þetta var gaman á meðan á þessu stóð en síðan sneri ég mér að körfubolta í KR eftir þetta.

Fylgist þú mikið með boltanum í dag?
Ég hef alltaf haft verið mjög áhugsamur um fótbolta. Mér finnst mjög gaman að horfa á góðan fótbolta. Ég reyni að mæta á landsleiki þegar að ég get og stundum á heimaleiki KR.

Síðan á ég mág sem hefur verið viðloðandi fótboltann, Guðjón Þórðarson. Maður hefur oft fylgst með honum, farið á leiki og haldið með liðum sem hann hefur þjálfað í gegnum árin.

Áttu einhver uppáhaldslið hér heima og erlendis?
Ég er í grunninn KR-ingur og það er mitt félag en ég á í rauninni ekkert eitt uppáhaldslið til dæmis í Englandi. Í gamla daga hélt ég alltaf með Tottenham en núna held ég bara með þeim liðum sem Íslendingar spila í. Þegar þau eru orðin svona mörg þá vandast málið. Ef strákarnir eru að spila á móti hvor öðrum þá lendir maður í vanda.

Hvenar fórstu síðast á völlinn?
Það var núna í sumar, við erum búin að fara á nokkra KR-leiki í Frostaskjólinu. Ég reyni að mæta á landsleikina bæði hjá stelpunum og strákunum en maður kemst ekki yfir mikið meira.

Hefur þú oft farið á völlinn erlendis?
Já ég hef farið á völlinn í Englandi. Ég fór á leikinn þegar að Guðjón Þórðarson var þjálfari Stoke þegar þeir unnu bikarkeppni árið 2000. Síðan hef ég farið á nokkra leiki með minni liðum.

Ég fór einnig á landsleikinn Frakkland - Ísland í París á sínum tíma og ég hef séð nokkra landsleiki erlendis. Ég hef hins vegar aldrei farið á almennilegan stórleik í Englandi. Manchester United - Liverpool eða Chelsea - Arsenal eða eitthvað svoleiðis. Maður verður að eiga eitthvað eftir.

Áttu einhvern uppáhaldsfótboltamann í heiminum?
Nei ég get nú varla sagt það. Það má segja að það séu margir listamenn sem spila fótbolta og eru ótrúlega góðir eins og maður sá í Evrópukeppninni um daginn. Ég vil helst ekki nefna einhvern einn.

Átt þú einhverja skemmtilega sögu tengda fótbolta?
Skömmu áður en ég hætti sjálfur í fótboltanum þá var ég næstum því búinn að gera sjálfsmark. Mér þótti alltaf hálfgerð skömm af svoleiðis á þeim árum. Þegar maður er tólf, þrettán ára þá er það ekki mjög uppörvandi. Ætli það hafi ekki verið liður í því að ég hætti.

Sjá einnig:
Fótboltinn minn: Páll Magnússon
Fótboltinn minn: Ceres 4
Fótboltinn minn: Siggi Stormur
Fótboltinn minn: Eiríkur Hauksson
Fótboltinn minn: Auðunn Blöndal
Fótboltinn minn: Logi Geirsson
Fótboltinn minn: Gísli Marteinn Baldursson
Fótboltinn minn: Egill Gillzenegger
Fótboltinn minn: Búi Bendtsen
Fótboltinn minn: Ívar Guðmundsson
Fótboltinn minn: Egill Helgason
Fótboltinn minn: Dagur B. Eggertson
Slapp
banner
banner
banner