Landsliðskonan Greta Mjöll Samúelsdóttir sleit krossbönd og verður frá knattspyrnu mjög lengi
,,Ég greip strax um hnéð og það tók mig örugglega um 3-4 sekúndur að átta mig á að fóturinn var ennþá á mér og allt cirka á sínum stað, en svo kom verkurinn og ég get ekki einu sinni lýst honum"
Greta Mjöll Samúlesdóttir leikmaður Breiðabliks og íslenska kvennalandsliðsins sleit krossband í hægra hné 6.júlí síðastliðinn. Það er gríðarlegur missir bæði fyrir Breiðablik og kvennalandsliðið en íslenska liðið spilar sinn stærsta leik til þessa í september gegn Frökkum um hvort liðið kemst beint í lokakeppni EM.
Það er ljóst að Greta spilar ekki meira með á þessu ári og meiðslin gætu tekið hátt í 9 mánuði en Greta fer í aðgerð 4.september.
Við settumst niður og ræddum við Gretu um þessi skelfilegu meiðsli sem halda henni frá knattspyrrnu vel fram á næsta ár, vonbrigðin að spila ekki meira í mjög langan tíma, landsliðið, endurhæfinguna, námið í Bandaríkjunum og fleira.
Það er ljóst að Greta spilar ekki meira með á þessu ári og meiðslin gætu tekið hátt í 9 mánuði en Greta fer í aðgerð 4.september.
Við settumst niður og ræddum við Gretu um þessi skelfilegu meiðsli sem halda henni frá knattspyrrnu vel fram á næsta ár, vonbrigðin að spila ekki meira í mjög langan tíma, landsliðið, endurhæfinguna, námið í Bandaríkjunum og fleira.
,,Ég var bara á æfingu, sunnudaginn 6.júlí, og við vorum að spila. Ég hljóp upp kantinn á ágætri ferð og steig í hægri fótinn og gaf fyrir með vinstri. Eftir eða þegar ég sendi þá finn ég og sé ég lærlegginn fara alveg inn og sköflungurinn var bara eftir. Ég greip strax um hnéð og það tók mig örugglega um 3-4 sekúndur að átta mig á að fóturinn var ennþá á mér og allt cirka á sínum stað, en svo kom verkurinn og ég get ekki einu sinni lýst honum.” Sagði Greta
Ég veit allavega að á stuttu ferðinni upp á spítala nefndi ég við mömmu mína hvað ég ætlaði aldrei að fæða henni nein barnabörn þar sem þetta væri svo vont og þó bara hnéð og ég gæti því ekki ímyndað mér hversu fjári vont það væri að fæða krakka. Ég fór svo bara beint upp á bekk á spítalanum og fékk morfín í æð, “ bætti Greta Mjöll við um hvernig krossböndin slitnuðu.
Frekar heppin með meiðsli hingað til
Greta telur sig hafa verið frekar heppna með meiðsli hingað til enda hafi hún aldrei áður lent í meiðslum sem halda henni frá keppni í langan tíma.
,,Ég hef nú meiðst þó nokkrum sinnum, en tel mig þó hafa verið heppna með meiðsli. Hef aldrei verið með meiðsli sem halda mér frá keppni í langan tíma eða eru mjög alvarleg líkt og þessi. En ég hef verið meidd í bakinu í gegnum tíðina og svo á ökklanum meira og minna reglulega síðan ég var 6 ára og þá sérstaklega í vor og sumar."
,,Ég hef brotið nefið á mér tvisvar og seinna skipti var nú í fyrra í deildinni. En eins og áður sagði þá hef ég talið mig vera frekar heppna með lítil meiðsli þangað til núna. Ég eigilega trúði því ekki að þetta gæti komið fyrir mig þar sem ég er alltaf svo heppin.”sagði Greta um meiðsli sem hún hefur lent í áður.
Greta er sem stendur eini landsliðsmaður Breiðabliks og algjör lykilleikmaður liðssins. Hefur Greta áhyggjur af stöðu liðsins og hvernig þær muni koma til með að fylla hennar skarð?
,,Ég hef engar áhyggjur af stelpunum. Þetta er missir fyrir liðið vona ég, allavega mín vegna, en við erum samt með svo frábærar stelpur sem hafa bara gott af tækifærinu. Ég átti svo líka alltaf að fara út 6.ágúst þannig að því var svo sem við að búast að þær þyrftu að fylla í skarðið þá, en þetta er bara 17 sinnum verri ástæða fyrir fjarverunni frá liðinu.” sagði Greta Mjöll
Annar leikmaður Blika, Jóna Kristín Hauksdóttir er jafnvel líka talin með slitin krossbönd og það væri skelfilegt fyrir Breiðablik að missa annan leikmann á svo stuttum tíma. Blikar halda enn í vonina að meiðslin séu ekki jafn alvarleg og talið er.
,,Við erum enn að halda í vonina að þetta sé eitthvað annað en krossbandið hjá henni. En það væri auðvitað alveg hræðileg og frekar ótrúlegt ef þau væru slitin, tvær á einni viku. Ég hreinlega veit ekki hvað gæti skýrt slíka óheppni, það er að sjálfsögðu mikið álag en það er hjá okkur öllum og í öllum liðum. En ef það færi svo hjá henni Jónu þá væri það alveg ljóst að við gerðum þessum lukkudísum eitthvað mikið, það er alveg á hreinu.” sagði Greta um óheppni blika í meiðslum undanfarið.
Missir af mikilvægasta leik íslenska landsliðsins til þessa
Þar sem Greta spilar ekki meira með á þessu ári er orðið ljóst að hún missir af þeim landsliðsverkefnum sem eftir eru. Við spurðum Gretu út í það og vonbrigðin að missa af leiknum mikilvæga gegn Frökkum nú í september.
,,Ef ég hefði bara orðin til þess að lýsa því. Það eru klárlega langmestu vonbrigðin fyrir mig að geta ekki farið til Frakklands, þar sem ég tel að þetta sé, án nokkurs vafa, mikilvægasti leikur í sögu íslenskrar knattspyrnu." sagði Greta
,,Nú hef ég bara sett mér ný markmið og set stefnuna á næsta sumar og ætla mér að vera tilbúin fyrir úrslitakeppni EM 2009, nú er það bara eins gott fyrir stelpurnar að klára þetta í Frakklandi. Ég er svo að pæla í að fara bara og sjá leikinn fyrst að maður kemst ekki með sem leikmaður þá verð ég kannski bara í stúkunni.” bætti Greta við, eðlilega mjög vonsvikin.
Nú hefur landsliðið lent í þónokkrum alvarlegum meiðslum það sem af er að árinu og meira en liðið ætti að venjast. Landsliðsfólkið okkar hefur verið undir miklu álagi en Greta segist þó sjálf oft hafa verið undir meira álagi. Telur hún álagið of mikið á þessum leikmönnum?
,,Ég veit það bara ekki. Ég neita því ekki að það kemur að sjálfsögðu upp í hugann því að þetta myndar leiðinlega mikið mynstur. En persónulega hef ég mjög oft verið undir miklu meira álagi heldur en núna. Mér finnst bara hræðilegt hvað krossbandaslit henda okkur kvenfólkið oft og vona að það verði einhvern tímann hægt að komast að orsökunum og finna leið til að komast hjá þessum meiðslum eftir bestu getu.” sagði Greta.
Frá í 6-9 mánuði
Greta telur að batinn taki 6-9 mánuði og fer í aðgerð 4.september, hún setur stefnuna á næsta tímabil.
,,Ég fer í aðgerð núna 4.september, daginn fyrir afmælisdaginn minn, alveg frábær afmælisgjöf. Talað er um að batinn taki 6-9 mánuði eftir aðgerðina sjálfa og set ég stefnuna á sem minnstan tíma að sjálfsögðu en þó með skynsemina í huga. En ef endurhæfingin tekur 9 mánuði verð ég samt komin í byrjun júní, sem er frábært. Ég set stefnuna bara á að reyna að ná næsta tímabili.” Sagði Greta.
Greta tók þá ákvörðun að fara ekki til náms í Bandaríkjunum vegna meiðslanna við báðum Gretu að segja okkur frá því hvað lægi að baki þeirri ákvörðun.
,,Fyrst og fremst þá þarf ég að fara í aðgerð núna 4. september og hitta lækninn viku fyrir það. Í mínum huga kom ekkert annað til greina en að fara í aðgerðina hér og það myndi þýða að ég kæmist ekki út fyrr en í lok september og það gengur bara ekki upp þegar skólinn byrjar í lok ágúst. “ sagði Greta
,,Ég er einnig að fara í fyrsta sinn út á haustönn, að fara að spila fyrsta tímabilið mitt og þetta breytir hlutunum töluvert. Ég var að fara út í frábæran pakka, fullt af fótbolta og framúrskarandi háskólanám, en pakkinn sem ég hefði farið út í núna væri skóli, mjög erfið endurhæfing í aðstöðu sem ég þekki ekki nógu vel ennþá og ég ein í Bandaríkjunum. "
,,Ég ætlaði mér út núna að byggja upp net í kringum mig, stimpla mig inn í boltann, kynnast öllu betur og festa mig í sessi en þetta setur töluvert strik í mín plön og minn reikning. Eins mikið og mig langaði þangað út núna, spila fullt, læra og vera í hörkuformi í Frakklandi í september, þá tel ég það ekki vera skynsamlegustu ákvörðunina núna eins og staðan er. "
,,Hér veit ég að við höfum frábæra lækna og sjúkraþjálfara, hér hef ég fjölskylduna mína og allt í kringum mig. Ég efast ekki um að endurhæfingu gæti verið ágæt þarna úti, en þegar kemur að þessu þá tek ég enga sénsa. Ég vona bara að þetta verði ennþá inn í myndinni þegar ég er búin að jafna mig og get farið að spila. " bætti Greta við.
Ótrúleg breyting
Þegar íþróttafólk meiðist eins alvarlega og Greta gerði verður algjör lífsbreyting á lífi þeirra enda allt annað líf framundan og Greta veit hreinlega ekki hvað hún á að gera á daginn.
,,Ég er eiginlega ennþá að átta mig á því hvað ég á að gera á daginn. Voða skrítið að koma heim úr vinnunni klukkan fjögur og hafa bara ekkert að gera. Ég er ennþá bara að melta þetta, fer á fótboltaleiki og er ekki enn að fatta að ég er ekki að fara í fótbolta alveg heillengi. Nú tekur maður bara þetta verkefni og tæklar það og verður komin í takkana áður en maður veit af” sagði Greta Mjöll að lokum við Fótbolta.net
Fótbolti.net þakkar Gretu fyrir viðtalið og óskar henni að sjálfsögðu sem hröðustum bata og vonar að hún komi sem fyrst á völlinn aftur.


