Nú er keppni í Landsbankadeild kvenna orðin rúmlega hálfnuð gerir Fótbolti.net í dag upp helminginn af mótinu. Hér að neðan má sjá val okkar á umferðum 1-9 og að mótinu loknu verður svo valið fyrir síðari hlutann.
Besti leikmaðurinn Dóra María Lárusdóttir, Valur
Dóra María Lárusdóttir er leikmaður fyrri umferðar. Hún hefur átt frábært tímabil með Val en lið hennar er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Sjálf hefur Dóra skorað 6 mörk og er næst markahæst í Val en hún hefur lagt upp ógrynni af mörkum fyrir samherja sína.
Besti þjálfarinn: Þorkell Máni Pétursson, Stjarnan
Oftast hefðu þjálfarar toppliðsins fengið þessa útnefningu á þessum tímapunkti en að okkar mati hafa framfarir Stjörnunnar eftir að Þorkell Máni tók við liðinu verið það miklar að hann verðskuldi þessa útnefningu. Liðinu var spáð 5. sæti deildarinnar en undir hans stjórn hefur verið allt annar bragur á liðinu sem hefur aðeins tapað tveimur leikjum sem voru gegn Val og KR sem eru yfirburðarlið í deildinni. Stjarnan er nú í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig og á enn leik til góða á önnur lið.
Besti erlendi leikmaðurinn : Brett Maron, Afturelding.
Brett Maron er búin að vera yfirburðarmaður í liði Aftureldingar það sem af er og hefur haldið liðinu á floti með frábærum markvörslum í nánast hverjum einasta leik. Brett er öruggur markvörður sem gerir fá mistök og stýrir varnarmönnunum fyrir framan sig mjög vel.
Besti nýliðinn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðablik.
Þessi 16 ára framherji sem er að slá í gegn hjá Breiðabliki, er búin að skora 6 mörk í 8 leikjum. Var valinn í 22 manna landsliðshóp Sigurðar Ragnars fyrir leikina gegn Slóveníu og Grikklandi.
Besti leikurinn: Valur - KR.
Annar úrslitaleikja deildarinnar þar sem Dóra María Lárusdóttir tryggði Val 2-1 sigur fimm mínútum fyrir leikslok fyrir framan nánast fulla stúku á Vodafone-vellinum. Flottur leikur og flott umgjörð.
Komið mest á óvart: Stjarnan.
Stjarnan er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með aðeins tvo tapleiki sem voru gegn Val og KR.
Vonbrigðin: Keflavík.
Keflavík byrjaði mótið af miklum krafti en hefur verið á hraðri niðurleið síðan. Liðið er búið að fá á sig 29 mörk eða næst flest allra liða og einungis unnið 2 leiki.
Lið 1-9 umferða 4-3-3:
Markvörður: Brett Elizabeth Maron (Afturelding)
Varnarmenn: Ásta Árnadóttir (Valur), Pála Marie Einarsdóttir (Valur), Guðrún Sóley Gunnarsdóttir (KR), Vanja Stefanovic (Valur)
Miðjumenn: Dóra María Lárusdóttir (Valur), Hólmfríður Magnúsdóttir (KR), Katrín Ómarsdóttir(KR)
Sóknarmenn: Margrét Lára Viðarsdóttir (Valur), Rakel Hönnudóttir (Þór/KA), Hrefna Huld Jóhannesdóttir (KR).
Flottasta markið: Marina Nesic með HK/Víkingi, gegn Keflavík.
Marina Nesic kom beint inn í lið HK/Víkings sama dag og hún kom til landsins, 12. júní, og skoraði strax þetta glæsilega mark. Hún tók þá aukaspyrnu á 28.mínútu rétt fyrir utan vinstra vítateigshorn Keflavíkur og þrumaði boltanum í bláhornið. Þetta mark var án efa flottasta mark sumarsins til þessa og greinilegt að HK/Víkingur var að næla sér í mjög athyglisverðan leikmann. Því miður fyrri félagið varð hún að yfiragefa landið fyrir nokkrum dögum þar sem dvalarleyfi hennar hér á landi rann út.
Jákvæð breyting:
Deildin er orðin mun jafnari en áður og færri stórsigrar líta dagsins ljós. KSÍ hefur tekið upp á þeirri nýbreytni að hafa eftirlitsmann dómara á öllum leikjum deildarinnar sem er jákvæð þróun.
Prúðasta liðið: Valur.
Íslandsmeistararnir sem eru á toppi deildarinnar hafa aðeins fengið á sig 6 gul spjöld, fæst allra í deildinni. Annars vekur það athygli að HK/Víkingur sem er í 9.sæti og þar með harðri botnbaráttu er bara með 7 spjöld en það eru bara tveir leikmenn sem hafa fengið þau. Marina Nesic tvö og Lidija Stojkanovic 5.
Má gera betur...
Sjónvarpið:
Enginn leikur hefur verið sýndur í beinni útsendingu í sjónvarpi og þó svo ellefta umferðin klárist í kvöld hefur ekki enn verið ákveðið um útsendingu frá mótinu. Ríkissjónvarpið á sjónvarpsréttinn á mótinu og lofaði fyrir mót 6-8 beinum útsendingum en hefur ekki náð saman við KSÍ um leiktíma sem hentar sjónvarpsútsendingum.
Landsbankinn:
Tilkynntu á kynningarfundi deildarinnar að allt yrði gert jafnt í karla og kvennaboltanum og að áhersla yrði lögð á að kynna mótið með vefborða á ýmsum vefsíðum. Í borðanum er hægt að sjá bestu mörkin úr Landsbankadeild karla fljótlega eftir að umferðunum lýkur en nú þegar Landsbakadeild kvenna er hálfnuð hefur aldrei komið einasta mark kvennamegin í borðann og tengill á kvennamörkin er dauður í borðanum. Samkvæmt Landsbankanum hefur verið óskað eftir að fá mörkin úr kvennaleikjum til birtingar á vefborðanum og er málið í skoðun hjá RÚV.



