Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 06:00
Magnús Már Einarsson
Markvarsla Jaeger og umdeilt atviki í KS/Leiftur-Þór (Myndband)
Oliver Jaeger.
Oliver Jaeger.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
KS/Leiftur og Þór gerðu markalaust jafntefli í fyrstu deild karla í síðustu viku.

Oliver Jaeger framherji KS/Leifturs þurfti að fara í markið í þeim leik eftir að Þorvaldur Þorsteinsson fékk að líta rauða spjaldið.

Jaeger stóð sig vel á milli stanganna og varði oft vel. Á YouTube má meðal annars sjá myndband þar sem hann ver aukaspyrnu frá Þórsurum í horn.

Á YouTube má einnig sjá atvik úr fyrri hálfleik þar sem Þórsarar eru ágengir upp við markið. Þeir áttu þá skalla að marki eftir hornspyrnu og Þorvaldur varði en erfitt að sjá hvort boltinn er kominn inn fyrir marklínuna eða ekki.

Markvarsla Oliver Jaeger

Myndband af marktilraun Þórsara í fyrri hálfleik

Sjá einnig:
Framherji KS/Leifturs átti góðan leik í markinu
Slapp
banner
banner