Lee Martin skoraði eina mark Manchester United í sigri á Orlando Pirates í Vodacom Challenge.
Markið kom um miðbik fyrri hálfleiks en margir ungir leikmenn byrjuðu hjá Manchester United í leiknum.
Wayne Rooney, Ryan Giggs, Gary Neville, Paul Scholes og Nemanja Vidic byrjuðu allir á bekknum en Wes Brown spilaði allan leikinn en hann heldur til Englands í dag þar sem systir hans lést á meðgöngu.
Þá gerði Liverpool markalaust jafntefli við Hertu Berlin þar sem Andriy Voronin misnotaði vítaspyrnu.





