Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 22. júlí 2008 23:59
Fótbolti.net
Umfjöllun LD kvenna: Ellefti sigur Vals í höfn
Kvenaboltinn
Valsstúlkur fagna í kvöld.
Valsstúlkur fagna í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson
Margrét Lára í bláum búningi í kvöld. Hún skoraði tvö fyrir Val.
Margrét Lára í bláum búningi í kvöld. Hún skoraði tvö fyrir Val.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson
Katrín Jónsdóttir fyrirliði Vals skallar boltann.
Katrín Jónsdóttir fyrirliði Vals skallar boltann.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson
Sophia Andrea Mundy lék sinn fyrsta leik fyrir Val í byrjunarliði.
Sophia Andrea Mundy lék sinn fyrsta leik fyrir Val í byrjunarliði.
Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson
Gangur leiksins:
HK/Víkingur 1-4 Valur:
1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir ('54)
1-1 Þórhildur Stefánsdóttir ('56)
2-1 Dóra María Lárusdóttir ('76)
3-1 Katrín Jónsdóttir ('81)
4-1 Margrét Lára Viðarsdóttir ('89)
HK/Víkingur tók á móti Íslandsmeisturum Vals í Víkinni í kvöld. Fyrir leikinn var HK/Víkingur í 9.sæti Landsbankadeildar kvenna með 6 stig á meðan gestirnir trónuðu einir á toppnum með fullt hús stiga.

Nýr leikmaður Vals Sophia Andrea Mundy sem kom frá Aftureldingu var í fyrsta skiptið í byrjunarliðinu og spilaði á vinstri kantinum. HK/Víkingur var einnig með nýjan leikmann í sínum röðum, Lilju Dögg Valþórsdóttur sem kom frá KR en hún spilaði í framlínunni að þessu sinni.

Leikurinn byrjaði nokkuð fjörlega og tók Valsliðið strax völdin á vellinum. Margrét Lára var óheppin að skora ekki fyrsta markið strax á 5.mínútu þegar hún rétt missti af boltanum inní markteig eftir góða sendingu Sifjar Atladóttur. Aðeins mínútu síðar bjargaði HK/Víkingur á marklínu eftir hornspyrnu Valsara.

Sophia Andrea Mundy var spræk í sóknarlínu Vals og átti fínt skot á markið á 13.mínútu sem Nína Björk í marki HK/Víkings varði naumlega í horn. Stuttu síðar átti Siv Rykær sem átti virkilega góðan leik fyrir Val í kvöld gott skot á markið sem Nína Björk varði vel í horn.

Eftir þessar sóknarlotur Valsstúlkna dró verulega úr leik liðsins og fá færi litu dagsins ljós. HK/Víkingur barðist vel með Lidiju Stojkanovic fremsta í flokki í vörninni, en hún átti frábæran leik í kvöld. HK/Víkingur átti þó fáar sem engar góðar sóknir í fyrri hálfleik en þær börðust virkilega vel í varnarlega

Staðan var markalaus þegar Halldór Breiðfjörð dómari leiksins flautaði til leikhlés.
HK/Víkingur gerði eina breytingu í hálfleik þegar Karen Sturludóttir kom inná fyrir Valgerði Tryggvadóttur.

Seinni hálfleikur byrjaði nokkuð rólega en á 54.mínútu dró loksins til tíðinda. Sophia Mundy komst í gott skotfæri eftir laglegt samspil við Hallberu Guðný Gísladóttur, Nína Björk varði frá henni og boltinn datt beint til Margrétar Láru Viðarsdóttur sem gerði engin mistök og skoraði og kom sínu liði í 1-0.

Aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði HK/Víkingur metin og markið var af skrautlegri gerðinni. Málfríður Erna Sigurðardóttir sem var komin í vinstri bakvörð var of lengi að athafna sig með boltann og þrumaði beint í Þórhildi Stefánsdóttur sem var komin í pressu. Boltinn sveif af henni yfir Randi Wardum í marki Vals sem gat lítið gert og staðan orðin 1-1. Virkilega góð pressa hjá HK/Víkingi en að sama skapi klaufalega gert af Val.

Eftir jöfnunarmarkið urðu sóknarlotur Vals sífellt þyngri. Það var fyrir tilurð Lidiju í vörn HK/Víkings að Valur náði ekki að skora en hún bjargaði sínu liði trekk í trekk.

Það var síðan á 76.mínútu að sóknarlotur Valsstúlkna skiluðu árangri. Rakel Logadóttir sem hafði komið inná sem varamaður keyrði upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir markið á Margréti sem gerði vel í að láta boltann fara á Dóru Maríu Lárusdóttir sem skoraði örugglega og kom Val yfir í 2-1. Rakel hafði komið inná á 63.mínútu en hún átti virkilega góða innkomu í kvöld og gerði útslagið í þessu marki.

Fimm mínútum síðar átti Sophia Andrea Mundy frábæra fyrirgjöf frá hægri beint á kollinn á fyrirliða sínum Katrínu Jónsdóttir sem skallaði hann inn og kom Val í 3-1. Virkilega fallegt mark.

Margrét Lára Viðarsdóttir kláraði síðan leikinn á 89.mínútu þegar hún skoraði fjórða markið og sitt annað í leiknum. Hún fékk innkast í fætur, snéri af sér varnarmann og þrumaði boltanum í nærhornið. Það er ljóst að varnarmenn HK/Víkings voru alltof sofandi í þessu marki og mega aldrei líta af markadrottningunni Margréti Láru.

Lokatölur í leiknum urðu 4-1 gestunum í vil. Þrátt fyrir að yfirburðir Vals í leiknum hafi verið algjörir hvað varðar sóknarfæri var til fyrirmyndar hvernig lið HK/Víkings barðist allt til enda. Það er ekki hægt að líta framhjá Lidiju Stojkanovic sem átti fantagóðan leik í vörninni en varnarleikur HK/Víkings var mjög agaður og skipulagður í kvöld.

Erfitt er að draga út ákveðna leikmenn í liði Vals í kvöld sem voru betri en aðrir. Þó er ekki hægt að líta framhjá framlagi Siv Rykær í leiknum sem skapaði fullt af góðum sóknum fyrir Val á miðjunni, Margrét Lára stóð fyrir sínu og vel það með 2 mörk og Katrín fyrirliði var dugleg á miðjunni.
Slapp
banner