Fjölnir 0-3 Stjarnan
0-1 Inga Birna Friðjónsdóttir ('6)
0-2 Björk Gunnarsdóttir ('24)
0-3 Björk Gunnarsdóttir ('37)
Stjarnan sigraði botnlið Fjölnis örugglega með þremur mörkum gegn engu í Grafarvoginum. Það var mikill baráttuleikur á ferðinni þar sem barist var um hvern einasta bolta sem í boði var.
Það tók ekki langa stund að koma leiknum í gang, en strax á 6. mínútu þá skoraði Inga Birna Friðjónsdóttir laglegt mark fyrir Stjörnuna og því erfið braut framundan fyrir Fjölni.
Stjarnan sótti mun meira í fyrri hálfleik, og fengu gullið tækifæri til að bæta við sig á 21. mínútu þegar Björk Gunnarsdóttir, framherji Stjörnunar fær sendingu inn fyrir en klúðrar því hrapalega.
Mínútu síðar fékk hún annað gott færi, en skaut rétt yfir markið og var hún svo sannarlega hungruð í mörkin í kvöld.
Það kom svo loks að því að Björk lagði knöttinn í netið, en á 24. mínútu geysist Inga Birna upp hægri kantinn og leggur boltann fyrir markið, þar sem Björk kemur á ferðinni og leggur boltann öruggt í markið.
Leikurinn einkenddist svo af baráttu í nokkrar mínútur og Fjölnir að reyna að halda sér inni í leiknum.
Á 37. mínútu komst Stjarnan hins vegar í þriggja marka forystu, þegar Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir á fína sendingu á Björk sem klárar þetta fínt rétt fyrir utan teig í hornið.
Þrátt fyrir þessa góðu forystu þá pressaði Stjarnan meira, og munaði litlu að Inga Birna hefði bætt við, en Sonný Lára í markinu hjá Fjölni hljóp út á móti henni og hreinsaði frá.
Það kom svo kraftur frá Fjölni undir lok fyrri hálfleiks, en þá átti Helga Franklinsdóttir skot sem Sandra Sigurðardóttir markvörður Stjörnuna varði rétt yfir markið.
Í síðari hálfleik var ljóst mál að Stjarnan myndi halda stöðunni góðri og hefja varnarleik sinn, og gerðu það með prýði, en boltinn var í fótunum á Fjölni meirihluta síðari hálfleiks.
Lítið markvert gerðist í þeim síðari og hélt Stjarnan stöðunni vel. Þriggja marka sigur í dag, og skein sólin breytt síðustu mínúturnar. Stjarnan sem fyrr í 3. sæti með 20 stig, á meðan Fjölnir sitja á botninum með 5 stig.
Fjölnir: Sonný Lára Þráinsdóttir (M), Helga Franklinsdóttir, Ásta Sigrún Friðriksdóttir, Kristin L. Sotak, Erla Þórhallsdóttir, Margrét María Hólmarsdóttir(Birna Sif Kristinsdóttir '78), Íris Ósk Valmundsdóttir, Kristín R. Hextall, Rúna Sif Stefánsdóttir, Elísa Ósk Viðarsdóttir, Tinna Þorsteinsdóttir
Ónotaðir varamenn: Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir, Auður Ýr Sigurðardóttir, Helena Konráðsdóttir, Katrín Ragnarsdóttir, Kristjana Ýr Þráinsdóttir, Eyrún Kristín Eyjólfsdóttir.
Stjarnan: Sandra Sigurðardóttir, Björk Gunnarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir(Pamel Liddell '75), Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir(Karin Sendel '62), Margrét Guðný Vigfúsdóttir, Inga Birna Friðjónsdóttir, Edda María Birgisdóttir, Guðný Jónsdóttir, Guðríður Hannesdóttir, Eyrún Guðmundsdóttir(Elín Heiður Gunnarsdóttir '82)
Ónotaðir varamenn: Tinna Mark Antonsdóttir, Guðrún Halla Finnsdóttir, Katrín Klara Emilsdóttir.
Dómari: Ólafur Kjartansson, fínn
Aðstæður: Skýjað og smá vindur, en sólin reis á síðustu mínútum leiks.
Maður leiksins: Björk Gunnarsdóttir (Stjarnan)


