Anna Elvíra Þórisdóttir skrifar
KR 3-1 Þór/KA:
1-0 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir ('21)
1-1 Alexandra Tómasdóttir ('32)
2-1 Edda Garðarsdóttir ('72)
3-1 Hólmfríður Magnúsdóttir ('75)
KR stelpurnar byrjuðu af krafti og átti Hólmfríður Magnúsdóttir fyrsta færi leiksins strax á fyrstu mínútu, en hún skaut rétt yfir slána. KR vildi svo fá dæmt víti eftir að bolti fór í hönd Þór/KA stelpu..
Leikurinn hélst meira á vallarhelmingi Þór/KA í byrjun leiks en á 21.mínútu fékk Fjóla Dröfn Friðriksdóttir boltann hjá vítateig og afgreiddi boltann snyrtilega yfir Berglindi Magnúsdóttur, markverði Þór/KA. Eftir þetta fór Þór/KA að gefa aðeins í og átti Alexandra Tómasdóttir dauðafæri á 29.mín.
Á 32.mín átti Þór/KA góða sókn sem endaði með góðri sendingu innfyrir vörn KR-inga og Alexandra Tómasdóttir skoraði glæsilegt mark og jafnaði metin fyir Þór/KA. Rakel Hönnudóttir átti einig góð færi sem hún náði ekki að nýta áður en flautað var til hálfleiks.
Í seinni hálfleik byrjuðu bæði lið vel og voru færi beggja vegna vallarins. Á 49.mín brýtur leikmaður Þór/KA illa á Emblu Sigríði Grétarsdóttur og þurfti hún að fara af velli í kjölfarið.
Stuttu eftir það fékk Ólína G. Viðarsdóttir gult spjald fyrir að sparka boltanum í burtu eftir að flautað var á aukaspyrnu og svo þegar hún klappaði fyrir dómara eftir að hafa gefið henni fyrra gula spjaldið fékk hún annað og var rekin þar af leiðandi af velli.
Eftir þetta efldust KR-stelpurnar og fóru að sækja af krafti. Það kom þó ekki í veg fyrir að Þór/KA stelpur sóttu hvað þær gátu og á 71.mín átti Rakel Hönnudóttir dauðafæri eftir góða stungusendingu frá Mateja Zver, en hún kom til liðsins í gær. Góð byrjun hjá Mateju.
Á 72.mínútu dró til tíðinda þegar Edda Garðarsdóttir skýtur þrumufleyg fyrir utan teig á Berglindi en hún ætlaði að verja með fótunum sem tókst ekki sem skildi og varði hann upp í hornslánni og inn. 2-1 fyrir KR.
Svo á 75.mín skorar Hólmfríður Magnúsdóttir glæsilegt mark. Berglind, markvörður Þór/KA, skutlar sér en nær ekki að koma höndum í boltann. Þór/KA gefst ekki upp og átti Rakel Hönnudóttir góð færi í lok leiks. Þetta var fjörugur leikur þar sem bæði lið voru að skapa sér færi.
Dragan Stojanovic, þjálfari Þór/KA, var að vonum svekktur eftir leikinn en hann var mjög sáttur með leik Þór/KA enda voru þær að skapa sér mörg góð færi sem þær náðu því miður ekki að klára.
Byrjunarlið KR: María Björg Ágústsóttir (M), Guðrún Sóley Gunnarsdóttir,Olga Færseth, Edda Garðarsdóttir, Guðný Guðleif Einarsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir, Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, Hrefna Huld Jóhannesdóttir (F)(Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir 79.), Embla Sigríður Grétarsdóttir (Ólöf Gerður Jónsdóttir Ísberg 63.) , Ólína G. Viðarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir.
Ónotaðir leikmenn: Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir, Íris Dögg Gunnarsdóttir.
Byrjunarlið Þór/KA: Berglind Magnúsdóttir (M), Dragana Stjoanovic, Ivana Ivanovic, Silvía Rán Sigurðardóttir, Rakel Hinriksdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Inga Dís Júlíusdóttir, Rakel Hönnudóttir (F), Bojana Besic, Alexandra Tómasdóttir (Mateja Zver 67.), Jónína Íris Ásgrímsdóttir.
Ónotaðir leikmenn: Karen Nóadóttir, Halla Valey Valmundsdóttir, Elma Rún Grétarsdóttir, Íunn Eir Gunnarsdóttir.
Dómari: Gylfi Már Sigurðsson
Aðstoðardómari 1: Jón Magnús Guðjónsson
Aðstoðardómari 2: Egill Örn Þórarinsson



