,,Það átti að reyna að koma hingað og sækja stig en það gekk ekki," sagði Björn Kristinn Björnsson þjálfari Fylkis eftir 0-1 tap liðsins gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum í kvöld en lið Fylkis var mjög lamað í kvöld, í það vantaði nokkra leikmenn sem almennt hafa spilað með liðinu.
,,Lovísa hefur verið veik og erlendu leikmennirnir okkar eru báðir erlendis. Við vorum svolítið undirmannaðar og vorum með tvo varamenn á bekknum úr 2. flokki og svo úr þriðja og fjórða flokki. Þetta var svolítið erfitt í þessu ástandi, við ætluðum að sækja hérna eitt stig en það gekk ekki upp."
Litlu munaði að Fylkir næði að jafna metin því liðið sótti stíft síðustu mínúturnar í leiknum og fékk sín færi til að jafna. Á þeim tíma var Björk Björnsdóttir markvörður liðsins komin inná sem varamaður í framlínuna og hin 14 ára gamla Eva Núra Abrahamsdóttir komin inná.
,,Þá var ég búinn að setja markmanninn og leikmann úr 4. flokki inná. Við vorum búnar að hækka okkur upp á völlinn og þær voru sestar á botninn. Eva Núra er búin að vera að æfa hjá okkur og átti virkilega skilið að fara inná og spila. Ég hef leyft hinum ungu stelpunum sem hafa verið að æfa hjá okkur að fara inná."
Veikindi og annað urðu til þess að Fylkir þurfti að breyta liðsuppstillingunni sinni mikið fyrir leikinn í kvöld og munar um fjölda leikmanna sem liðið hefur misst frá sér frá síðustu leiktíð.
,,Lovísa gat ekki leikið þennan leik og Hekla var hálflasin í miðverðinum. Báðir írsku leikmennirnir voru svo farnir af landi brott og það var erfitt að fylla þessi skörð á vellinum. Frá því á síðasta leiktímabili er ég búinn að missa níu leikmenn en það sýnir sig hvað hópurinn er ótrúlega stór og öflugur þannig lagað hjá Fylki. Það eru ekki mörg lið sem mega við því að missa níu leikmenn."
,,Þar af eru leikmenn eins og Anna Björg Björnsdóttir sem var okkar sterkasti leikmaður, Ásta, Natasja og Thelma. Nú eru Sarah McFadden og Ashley Hutton ekki með í þessum leik. Svo er Ragga sem kom til okkar farin gleðilega frá okkur því hún er barnshafandi en þetta er eitthvað sem við megum ekki alveg við."



