Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 10:29
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða ÍA 
Atli Guðjónsson leystur undan samningi ÍA að eigin ósk
Atli í leik gegn Fjölni í sumar.
Atli í leik gegn Fjölni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Atli Guðjónsson óskaði eftir því í gær við stjórn knattspyrnufélags ÍA um að verða leystur undan samningi við félagið. Stjórn knattspyrnufélags ÍA varð að ósk hans.

Atli er sonur Guðjóns Þórðarsonar fyrrum þjálfara Skagamanna en hann var látin taka pokann sinn á mánudaginn.

Atli sem er tvítugur gekk í raðir ÍA fyrir síðustu leiktíð en hann lék aðeins einn leik það sumar.

Í sumar hefur Atli sem leikur sem varnarmaður svo komið við sögu í þremur leikjum hjá Skagamönnum.
Slapp
banner
banner
banner