Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 11:03
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða ÍA 
ÍA hefur ekki leyft öðru félagi að ræða við Bjarna Guðjónsson
Bjarni í leik gegn Fylki í sumar.
Bjarni í leik gegn Fylki í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Skagamenn hafa ekki gefið neinu félagi leyfi til að ræða við Bjarna Guðjónsson fyrirliða liðsins. Frá þessu greinir Gísli Gíslason formaður Rekstrarfélags Knattspyrnufélags ÍA.

Bjarni hefur verið orðaður við brottför frá félaginu eftir að faðir hans Guðjón Þórðarson lét af störfum á mánudag.

Orðrómur er um að Valur, FH og KR hafi hug á því að fá Bjarna í sínar raðir.

,,Af hálfu stjórnar og þjálfara er það eindreginn vilji og ósk að fyrirliði liðsins verði áfram með liðinu og engum hefur að svo komnu máli verið heimilað að ræða við leikmanninn," sagði Gísli á heimasíðu ÍA:

,,Bjarni Guðjónsson er frábær leikmaður sem skiptir félagið miklu máli. Ef hann og aðrir leikmenn eru klárir í þá baráttu sem framundan er þá mun okkur farnast vel."
Slapp
banner
banner