ÍBV hefur fengið miðjumanninn Bjarnólf Lárusson til liðs við sig og mun hann leika með liðinu í síðari hluta fyrstu deildarinnar.
Bjarnólfur hefur leikið með KR undanfarin ár en í sumar hefur hann ekkert verið með liðinu. Í viðtali á Fótbolta.net í apríl sagðist Bjarnólfur búast við að spila ekkert í sumar en nú hefur annað komið á daginn.
,,Leitað var til Bjarnólfs þegar ljóst var að Italo Maciel myndi yfirgefa félagið og tók hann vel í ósk okkar um að koma til liðs við okkur í baráttunni um úrvalsdeildarsæti. Hann er kærkominn viðbót við leikmannahóp ÍBV og mun styrkja hið unga og efnilega lið mikið," sagði á heimasíðu ÍBV í dag.
Þessi 32 ára gamli leikmaður þekkir vel til ÍBV en hann kom til KR frá Eyjamönnum haustið 2004. Bjarnólfur lék lengi með Eyjamönnum og varð meðal annars Íslandsmeistari með liðinu árið 1997.
Bjarnólfur hefur leikið 166 leiki í efstu deild hér á landi og skorað í þeim 19 mörk með KR og ÍBV. 17 af þessum mörkum skoraði hann í 123 leikjum með ÍBV.
Auk þessara liða hefur hann leikið með Walsall og Scunthorpe á Englandi auk Hibernian í Skotlandi.


