Selfyssingar fengu í dag miðju- og varnarmanninn Jón Guðbrandsson aftur heim á Selfoss, en hann hefur verið á mála hjá Víking síðastliðin þrjú ár.
Jón, sem verður 23 ára á þessu ári hóf meistaraflokksferil sinn hjá Selfoss árið 2002 eftir að hafa leikið þar upp alla yngri flokkana.
Árið 2004 gekk Jón í raðir Víkinga og fór með þeim upp í efstu deild, hann hefur spilað 23 leiki í efstu deild og 19 í 1. deild fyrir Víkinga og skorað í þessum leikjum 9 mörk.
Áður en Jón gekk í raðir Víkings hafði hann spilað 34 leiki fyrir Selfoss og skoraði í þeim 9 mörk. Einnig hafði Jón spilað 9 leiki með u-17 ára landsliðinu og 2 leiki með u-19 ára landsliðinu þegar hann var á Selfossi.
Jón var að vonum mjög ánægður með að snúa aftur til síns gamla félags. ,,Já ég er hrikalega sáttur við að vera kominn heim, ég er að standa upp úr meiðslum og nú er bara að vinna sig inn í hópinn hjá Selfoss."
,,Öll umgjörð hér á Selfoss er svo allt öðruvísi en þegar ég var hér síðast, þetta er farið að minna á klassa klúbb, bæði hvað varðar stuðningsmannasveitina Skjálfti og eins allur aðbúnaður leikmanna og hvernig hugsað er um okkur. Við höfum verið að koma heim á Selfoss aftur nokkrir leikmenn, eftir að hafa fengið úrvalsdeildarreynslu og nú er bara að borga Selfoss það til baka sem klúbburinn gerði fyrir okkur."
,,Eitt sjokkeraði mig reyndar þegar ég kom á fyrstu æfinguna, því hjá Víking var ég aðal tjokkó-inn, en hér er ég ca númer 14," sagði Jón sem vildi að lokum þakka stuðningsmönnum, stjórn og öllum Víkingum fyrir frábær ár.
,,Það er erfitt að kveðja Víkinga, þetta er góður klúbbur og vona ég að þeim gangi sem best í sumar og um ókominn ár.”
Tómas Þóroddsson tæknilegur ráðgjafi Selfossliðsins sagði: ,,Við höfum verið að fá til baka, alla okkar uppöldu stráka og það er kjarninn í liðinu. Í 24 manna leikmannahóp okkar eru allir búsettir á Selfossi eða uppaldir Selfossstrákar, nema fjórir sem hafa komið annarstaðar frá. En þeir sem ekki eru uppaldir hjá klúbbnum hafa fallið ótrúlega vel í hópinn og gera ekkert annað en að bæta hann. Að launum fyrir að spila með Selfoss, höfum við verið að reyna kenna þessum strákum að klappa í takt."


