Heimild: BBC
Liverpool hefur fengið hægri bakvörðinn Emmanuel Mendy frítt frá Murcia Deporitvo í spænsku þriðju deildinni.
Þessi 18 ára gamli leikmaður getur einnig leikið í stöðu vinstri bakvarðar.
Hann mun væntanlega vera í varaliði Liverpool til að byrja með en Rafa Benitez stjóri félagsins hefur verið duglegur við að fá unga leikmenn til liðsins í sumar.
Auk Mendy hafa Christopher Buchtmann, Nikola Saric, Zsolt Poloskei og Vincent Lucas Weijl gengið til Liverpool.
Þá hafa Philipp Degen, Andrea Dossena og Diego Cavalieri allir verið fengnir inn í aðalliðið í sumar.


