Bjarnólfur Lárusson nýjasti leikmaður ÍBV vonast eftir því að geta hjálpað liðinu í komandi átökum.
Eyjamenn sem eru á toppi 1. deildarinnar hafa verið að missa menn í meiðsli og þá hafa þrír Brasilíumenn sem gengu í raðir félagsins fyrir sumarið allir horfið á braut.
,,Ég hef ekki snert fótbolta síðan ég spilaði síðasta leik síðasta sumar svo að það verður bara að koma í ljós hvernig formið er," sagði Bjarnólfur í samtali við Fótbolta.net í dag.
Bjarnólfur hafði gefið það út í vetur að hann ætlaði að hætta í fótbolta en þegar Eyjamenn höfðu samband þá ákvað hann að slá til.
,,Mér líst mjög vel á að geta rétt fram hjálparhönd þarna í Eyjum, þeir hafa verið að missa leikmenn og hafa staðið sig mjög vel í sumar," sagði Bjarnólfur sem vonast til að geta hjálpað liðinu.
,,Mér líst vel á allt umhverfi þarna í Eyjum og það er bara gaman að geta hjálpað til og vonandi gengur þetta vel það sem eftir er," sagði Bjarnólfur sem segir að nokkuð hafi verið um fyrirspurnir í sig í sumar.
,,Það hefur verið nokkuð um fyrirspurnir og ég ætlaði að vera hættur og ætlaði ekki að spila í sumar en þeir Eyjum vildu fá mig til að koma til að hjálpa þeim og leggja hönd á plóg."
Hann segir ekkert annað koma til greina en að liðið fari upp en sem stendur eru Eyjamenn á toppi deildarinnar sex stigum á undan Selfossi.
,,Liðið er búið að vera að spila geysilega vel í sumar og eina markmiðið er að fara upp, það er alveg ljóst," sagði Bjarnólfur að lokum í samtali við Fótbolta.net.


