Heimild: BBC
Ræningjar réðust inn á heimili Emile Heskey, framherja Wigan, og ógnuðu eiginkonu hans með hnífi.
Húsið er í Manchester en tveir menn réðust inn á heimili framherjans sem staddur var á æfingu þegar atvikið átti sér stað.
Ræningjarnir tóku lyklana af BMW bifreið Heskey sem þeir flúðu svo af vettvangi í.
,,Við getum staðfest það að varð innbrot á heimili Emile Heskey en sem betur fer slasaðist enginn," sagði talsmaður Wigan.
Talsmaður Wigan sagði ennfremur að atvikið sem hefði átt sér stað þann 16. júlí væri nú í höndum lögreglunnar.


