Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 13:31
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Göteborgs Posten 
Jóhann Birnir fer frítt til Keflavíkur frá GAIS
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Jóhann Birnir Guðmundsson leikmaður GAIS fer frítt til Keflavíkur en hann mun klára félagaskipti sín á næstu dögum.

,,Hann hefur gert ótrúlega mikið fyrir okkur," sagði Christer Wallin hjá GAIS við Göteborgs-posten.

,,Hann er með stórt GAIS hjarta og hefur gert alveg ótrúlega mikið fyrir okkur í gegnum árin, þetta er okkar leið til að borga honum til baka."

Jóhann Birnir er þrítugur og lék með Víði Garði og síðan Keflavík á sínum yngri árum. Hann fór síðan í atvinnumennsku árið 1997.

Undanfarin tvö tímabil hefur hann leikið með GAIS en þar áður var Jóhann á mála hjá Watford, Lyn og Örgryte.
Slapp
banner