Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 12:37
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Katrín Ómarsdóttir leikmaður KR lenti í bílslysi
Heppin að vera ekki meira meidd en raun ber vitni
Kvenaboltinn
Katrín í leik með KR í sumar
Katrín í leik með KR í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katrín Ómarsdóttir miðvallarleikmaður KR spilaði ekki með liðinu í gær sem mætti Þór/KA í elleftu umferðar Landsbankadeildar kvenna. Ástæðan fyrir því er sú að Katrín lenti í bílslysi á laugardaginn sem leið þegar bíll hennar valt útaf veginum þegar hún var að keyra á Suðurlandi.

,,Ég og bróðir minn vorum bara að keyra úti á landi, það kom kafli á veginum sem var lausamöl, við misstum stjórn á bílnum og bíllinn valt nokkrar veltur langt út á gras,” sagði Katrín um bílveltuna.

Bíllinn endaði sem betur fer á grasi skammt frá veginum því mikið verr hefði getað farið ef bíllinn hefði lent á steinum og grjóti. Til mikillar lukku slapp Katrín og bróðir hennar ótrúlega vel frá slysinu og er einungis um mar og skrámur að ræða. Bíllinn gjöreyðilagðist og var Katrínu sagt að það hafi bjargað þeim systkinum hversu öruggum bíl þau voru á en þau voru að keyra Audi.

,,Ég er bara fegin að vera heil og hafa ekki brotnað neins staðar, þetta fór betur en þetta hefði getað farið, við vorum mjög heppin. Bróðir minn er aðeins meiddur á hálsi og með skrámur. Ég er aðallega marin á öxlinni og síðan smá skrámur,” sagði Katrín

Katrín Ómarsdóttir fer til náms í Bandaríkjunum fljótlega og hefði bara getað náð einum leik í viðbót fyrir KR liðið, en býst hún við því að ná næsta leik sem er gegn Breiðabliki?

,,Ég bara veit það ekki. Ég á náttúrlega bara einn leik eftir þangað til ég fer út og það verður frekar svekkjandi ef ég missi af honum,” sagði Katrín Ómarsdóttir að lokum í samtali við Fótbolta.net í dag.
Slapp
banner