Berglind Björg var valin besti nýliðinn að mati Fótbolta.net í umferðum 1-9
Berglind Björg Þorvaldsdóttir 16 ára leikmaður Breiðabliks var valin besti nýliðinn að mati Fótbolta.net í fyrri umferð landsbankadeildar kvenna. Berglind Björg skoraði 6 mörk í 8 leikjum Blika og er því markahæst í liði Breiðabliks. Í júní var hún síðan verðlaunuð fyrir góða frammistöðu með því að vera valin í 22 manna landsliðshóp sem mætti Slóveníu og Grikklandi en hún komst þó ekki í lokahópinn.
Við spjölluðum við þennan efnilega leikmann í dag og byrjuðum á að spyrja hana hvort að tilnefningin hafi komið henni á óvart.
,,Já þetta kemur skemmtilega á óvart og virkilega gaman að fá þessa viðurkenningu” sagði Berglind Björg.
Berglind Björg er aðeins 16 ára að aldri og hefur æft fótbolta frá því að hún var 6 ára gömul og nú er hún búin að stimpla sig rækilega inní Landsbankadeildina þrátt fyrir ungan aldur.
,,Ég er búin að æfa fótbolta síðan ég var 6 ára og finnst bara gaman að taka þátt í þessari deild. Deildin er mjög sterk og þetta eru mikil viðbrigði,” sagði Berglind Björg um Landsbankadeildina.
Vanda Sigurgeirsdóttir er þjálfari Breiðabliks eins og flestir vita en hún er hokin af reynslu og hefur unnið fjöldann allan af titlum í gegnum árin. Við spurðum Berglindi hvernig það væri að hafa jafn færan þjálfara og Vanda er.
,,Það er mjög gaman og lærdómsríkt að hafa hana sem þjálfara. Hún er góður þjálfari sem hefur kennt mér mikið, mér finnst hún alveg frábær,” sagði Berglind Björg um þjálfarann sinn.
Berglind Björg var í fyrsta sinn valinn í 22 manna landsliðshóp Sigurðs Ragnars fyrir landsleikina gegn Slóveníu og Grikklandi núna í Júní. Við spurðum Berglindi hvort að stefnan væri ekki tekin á landsliðið.
,,Jú stefnan er að sjálfsögðu sett á landsliðið, við sjáum síðan hvernig það gengur bara,” sagði Berglind.
Við spurðum síðan besta nýliðann hvernig henni fyndist umfjöllunin um Landsbankadeild kvenna hafa verið í ár það sem af er að sumri.
,,Umfjöllunin hefur verið nokkuð góð bara.”
Breiðablik spilar gegn KR á sunnudag og við spurðum hana að lokum hvernig leikurinn legðist í hana og hvort það hefði ekki mikil áhrif á liðið að hafa lent í tveimur krossbandaslitum í sömu vikunni.
,,Leikurinn leggst mjög vel í mig, smá stress í gangi. En það hefur að sjálfsögðu mikinn áhrif á hópinn að lenda í svona meiðslum en við þjöppum okkur bara saman og verðum tilbúnar á sunnudaginn þegar flautað verður til leiks,” sagði Berglind Björg besti nýliðinn að mati Fótbolta.net í dag.

