Heimild: Sky
Chelsea vann öruggan 4-0 sigur á Guangzhou Pharmaceutical í æfingaleik í Kína í dag.
Luiz Felipe Scolari stjóri Chelsea stillti upp sterku liði og nýju mennirnir Jose Bosingwa og Deco voru báðir í byrjunarliðinu.
Salomon Kalou kom Chelsea yfir eftir 20 mínútur en hann lék frammi með Nicolas Anelka.
Chelsea hafði átt nokkrar ágætis tilraunir áður en Frank Lampard skoraði annað markið í síðari hálfleik með skoti af löngu færi.
Argentínumaðurinn ungi Franco Di Santo bætti við þriðja markinu og Shaun Wright-Phillips, einn af átta varamönnum Chelsea í leiknum, skoraði síðan fjórða markið.

