Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 16:02
Hafliði Breiðfjörð
Norður Írsku stúlkurnar hjá Fylki fóru í óleyfi úr landi
Kvenaboltinn
Björn Kristinn er hér í miðju ásamt Hutton sem er vinstra megin og McFadden sem er hægra megin.
Björn Kristinn er hér í miðju ásamt Hutton sem er vinstra megin og McFadden sem er hægra megin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Norður Írsku stúlkurnar Sarah McFadden og Ashley Hutton fóru án leyfis félagsins úr landi og léku því ekki með liðinu gegn Aftureldingu í Landsbankadeild kvenna í gærkvöld. Björn Kristinn Björnsson þjálfari liðsins segir óljóst hvort þær spili með félaginu á ný enda um samningsbrot að ræða af þeirra hálfu.

,,Þær fóru í óleyfi félagsins í landsleik og það er mál stjórnar félagsins sem og KSÍ og írska sambandsins að vinna í þeim málum," sagði Björn Kristinn þjálfari Fylkis í samtali við Fótbolta.net efitr leikinn gegn Fylki í gærkvöld.

,,Þetta var landsleikur sem var færður til og útfyrir tímaramma. Landsliðsþjálfarinn krafðist þess að þær kæmu með ákveðið miklum fyrir vara og setti gríðarlega mikinn þrýsting á þær að koma. Við ætluðumst til að þær færu í fyrramálið [í dag] og þá hefðu þær nægan tíma til að æfa fyrir landsleikinn."

Sarah McFadden og Ashley Hutton hafa verið lykilleikmenn hjá Fylkisliðinu og því mikill missir af þeim, en er útilokað að þær snúi aftur til félagsins eftir landsleikinn?

,,Hvað verður í framhaldinu er ekki gott að segja, þetta er bara samningsbrot og það er alltaf erfitt að eiga við svoleiðis. Hvernig þessi mál þróast skal ég ekki segja um," sagði Björn Kristinn en hann vildi ekki meina að sökótt væri við írska knattspyrnusambandið heldur þjálfara landsliðsins og stúlkurnar sjálfar.

,,Írska sambandið var algjörlega sammála okkur í þessu, málið snerist um þrýsting sem landsliðsþjálfari Norður Íra hefur beint við þær símleiðis. Það er ekki sú leið sem á að fara. Þær tóku þessa ákvörðun og vissulega er það skiljanlegt þegar maður er að fara að spila fyrir hönd þjóðarinnar að þær vilji fara en þetta var einstaklega óheppilegt."
Slapp
banner
banner