KR mætir Grindavík í 8-liða úrslitum VISA-bikars karla í kvöld en þessi lið áttust einnig við í Landsbankadeildinni síðastliðið mánudagskvöld og þar höfðu Grindvíkingar betur 2-1.
,,Þetta er það besta í stöðunni, eftir að hafa tapað grátlega að geta mætt þeim þremur dögum seinna og gert upp fyrir ófarir sínar," sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson varnarmaður KR við Fótbolta.net í gær.
,,Við vorum fínir varnarlega en við vorum frekar geldir fram á við, allt liðið. Við viljum tvímælalaust bæta upp fyrir það um leið og það er frábært að geta mætt þeim strax og reynt að gera betur."
KR-ingar hafa slegið KB og Fram út úr bikarnum í ár en liðið ætlar sér stóra hluti í keppninni.
,,Í byrjun bikarsins var stefnan tekinn á að klára þetta dæmi. Þetta er ein skemmtilegasta keppnin og við viljum fara eins langt og við getum. Hver leikur er úrslitaleikur og ef við vinnum þennan erum við komnir í undanúrslit og þá er þetta orðið ennþá skemmtilegra, þá er meira umstang í kringum þetta."
,,Það er búið að vera smá brölt á okkur í sumar og við höfum ekki staðið okkur alveg nógu vel að okkar mati. Að geta farið langt í þessi væri mikil sárabót og við munum koma dýrvitlausir til leiks," sagði Grétar Sigfinnur að lokum við Fótbolta.net.



