Jóhann Berg Guðmundsson leikmaður Breiðabliks á von á hörkuleik þegar liðið mætir Keflavík í átta liða úrslitum VISA-bikarsins í dag.
,,Leikurinn leggst virkilega vel í mig og held okkur alla, við erum búnir að spila virkilega vel í síðustu leikjum og ætlum að sjálfsögðu að halda því áfram," sagði Jóhann Berg í samtali við Fótbolta.net í gær.
Hann á von á hörkuleik en þessi lið mættust í deildinni þann 30. júní og þá endaði leikurinn 2-2 þar sem Blikar komu til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.
,,Þetta verður án efa erfiður leikur, Keflavík eru einnig að spila skemmtilegan bolta þannig þetta verður vonandi skemmtilegur leikur. Við eigum eftir að mæta brjálaðir til leiks og ætlum okkur í undanúrslitin það er engin spurning."
Jóhanni gekk erfiðlega að koma boltanum í netið í upphafi móts en braut ísinn gegn Val í 16 liða úrslitum og hefur skorað í þrjú mörk í fjórum leikjum.
,,Ég er búinn að skora núna í síðustu leikjum og ætla að sjálfsögðu að halda því áfram því ég beið lengi eftir þessum mörkum."
Áheit hafa gengið á milli leikmanna Blika og þjálfara og þurftu þjálfararnir að fara í sjóinn og eiga eftir að hjóla í Bláa lónið.
,,Eflaust verða einhverjar áskoranir og kemur það allt í ljós eftir leik. við erum allavega ekki ennþá farnir út í sjó og ætlum við okkur ekkert að fara þangað," sagði Jóhann Berg að lokum í samtali við Fótbolta.net.




