Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 16:53
Hafliði Breiðfjörð
Jóna Kristín með slitið krossband - Mikið áfall segir Vanda
Kvenaboltinn
Jóna Kristín borin af velli í síðustu viku.
Jóna Kristín borin af velli í síðustu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóna Kristín ásamt Fanndísi Friðriksdóttur liðsfélaga sínum.
Jóna Kristín ásamt Fanndísi Friðriksdóttur liðsfélaga sínum.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Vanda Sigurgeirsdóttir telur heljarstökk eftir sigur liðsins í bikarnum á Akureyri á dögunum.
Vanda Sigurgeirsdóttir telur heljarstökk eftir sigur liðsins í bikarnum á Akureyri á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Fannar
Jóna Kristín Hauksdóttir leikmaður Breiðabliks er með slitið krossband en þetta fékk hún staðfest í skoðun hjá Sveinbirni Brandssyni lækni í dag. Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari Breiðabliks staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag en Jóna Kristín er annar leikmaður Breiðabliks sem slítur krossbönd á nokkrum dögum því áður hafði Greta Mjöll Samúelsdóttir lent í sömu meiðslum.

Jóna Kristín lenti í meiðslunum í leik liðsins gegn Aftureldingu í síðustu viku og strax var óttast að um slitin krossbönd væri að ræða. Nú hefur það fengið staðfest og Vanda segir það mikið áfall.

,,Fyrst var mikið áfall að missa Gretu og svo var Jóna Kristín farin að spila stöðuna hennar Gretu á vinstri kantinum sem hún hafði gert í vetur þegar Greta var í Bandaríkjunum," sagði Vanda í samtali við Fótbolta.net í dag en er þá einhver sem þorir að spila þessa stöðu í dag þegar tvær hafa lent í krossbandaslitum eftir að hafa spilað hana?

,,Sandra Sif Magnúsdóttir er ekki hrædd við neitt og tekur þessa stöðu. Greta kom reyndar með þá hugmynd hvort við ættum ekki að sleppa því að hafa vinstri kantmann," sagði Vanda.

,,Þetta er mjög mikið áfall fyrir liðið, en mér finnst þetta líka vera mikið áfall fyrir Jónu sjálfa því hún er ung og er í U19 ára landsliðinu sem á að leika í haust. Hún var að fara að fá tækifæri eftir að hafa verið á bekknum. Fyrir hana er þetta mjög svekkjandi og ferlega leiðinlegt. Þegar þetta gerist tvisvar á svona stuttum tíma verður þetta meira kjaftshögg."

Erna Björk Sigurðarsdóttir var frá á síðustu leiktíð eftir að hafa slitið krossband í þriðja sinn en sneri svo aftur í liðið á þessari leiktíð og hefur staðið sig mjög vel. Vanda telur að saga Ernu geti hjálpað Gretu og Jóu.

,,Nú fara þær tvær bara í aðgerð og koma svo sterkar á næsta ári. Erna er lifandi dæmi um að það er fótbolti eftir krossbandaslit. Svo hafa þær Greta og Jóna stuðning af hvorri annarri og geta fylgst að í batanum," sagði hún.

Auk Gretu og Jónu Kristínar hefur Breiðablik einnig misst tvo leikmenn sem fóru í önnur lið í félagaskiptaglugganum. Vanda er ekki viss hvort hún muni styrkja hópinn frekar áður en glugginn lokar.

,,Ég er með fullt traust á liðið mitt eins og það hefur verið og ætla að halda því áfram. Við erum ekki með nein áform um að leita til útlanda eftir leikmönnum en ef einhverjir góðir leikmenn bjóðast þá myndi ég ekki segja nei við því vegna þess að hópurinn er þynnri en hann var," sagði Vanda sem hefur að undanförnu tekið leikmenn úr 2. flokknum upp í hópinn.

Að lokum spurðum við Vöndu að því hvað veldur því að tveir leikmenn lendi í eins meiðslum á svo stuttum tíma, er eitthvað sem hún hefði getað gert öðruvísi í þjálfuninni til að hindra þetta?

,,Sem þjálfari fer maður að velta því fyrir sér hvort ég hafi verið að gera eitthvað vitlaust en þær eru að koma úr mjög ólíku undirbúningstímabili. Jóna hér heima með okkur og Greta úti," sagði Vanda.

,,Við spurðum Sólveigu sjúkraþjálfara sem er með mjög mikla reynslu og Sveinbjörn lækni og þau sögðu bæði að þetta væri bara tilviljun, þær séu bara óheppnar," sagði Vanda að lokum.
Slapp
banner
banner