Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 22:11
Magnús Már Einarsson
Helga sagt upp störfum hjá Njarðvík - Marko Tanasic tekinn við
Marko Tanasic og Sighvatur Gunnarsson stjórnarmaður handsala samninginn í kvöld.
Marko Tanasic og Sighvatur Gunnarsson stjórnarmaður handsala samninginn í kvöld.
Mynd: Heimasíða Njarðvíkur
Stjórn Knattspyrnudeildar Njarðvikur ákvað í dag að rifta samningi sínum við Helga Arnarson þjálfara meistaraflokks karla en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

,,Stjórn deildarinnar vill þakka Helga Arnarsyni fyrir bestu þakkir fyrirr störf hans fyrir deildna á sl. tveimur keppnistímabilum og óskar honum farsældar og gæfu á komandi árum," segir á heimasíðu Njarðvíkinga.

Við þjálfarastarfinu tekur gamli refurinn Marko Tanasic en hann hóf störf í kvöld og mun stýra Njarðvíkingum gegn Víkingi Ólafsvík í fyrstu deildinni annað kvöld.

Tanasic lék lengi vel með Keflvíkingum og þjálfaði síðan KS og síðar KS/Leifur frá 2002-2006.

Í fyrrasumar þjálfaði Tanasic síðan annan flokk karla hjá Keflavík.

Njarðvíkingar eru sem stendur með sex stig í neðsta sæti fyrstu deildarinnar en liðið mætir Víkingi Ólafsvík annað kvöld eins og fyrr segir.
Slapp
banner
banner