Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 22:21
Magnús Már Einarsson
3.deild: KB sigraði Skallagrím
Óttar Bjarni Guðmundsson (til hægri) skoraði fyrir KB í kvöld.
Óttar Bjarni Guðmundsson (til hægri) skoraði fyrir KB í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KB 4 - 2 Skallagrímur
0-1 Valdimar K. Sigurðsson
1-1 Sigurjón Michael Kleitz
1-2 Markaskorara vantar
2-2 Óttar Bjarni Guðmundsson
3-2 Sigurður Lúðvík Stefánsson
4-2 Ólafur Hrannar Kristjánsson

Einn leikur var á dagskrá í þriðju deild karla í kvöld en KB sigraði Skallagrím 4-2 á heimavelli í A riðli.

Skallagrímsmenn komust reyndar tvívegis yfir en KB hafði betur að lokum.

Ólafur Hrannar Kristjánsson innsiglaði 4-2 sigur liðsins þegar að tæpar tíu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en hann skoraði þá í autt markið eftir að markvörður Skallagríms skellti sér fram í hornspyrnu þegar að Borgnesingar reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna metin.

Skallagrímur er sem fyrr í toppsæti riðilsins með 24 stig en þetta var aðeins annar tapleikur liðsins í sumar.

KB er hins vegar í fjórða sæti riðilsins með 17 stig og er með sigrinum komið nær toppbaráttunni.
Slapp
banner