Valsmenn töpuðu í kvöld 1-0 fyrir hvít-rússnensku meisturunum í BATE Borisov á Vodafone vellinum. Markið kom eftir aðeins 49 sekúndur. Þetta var annar leikur liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, en fyrri endaði með 2-0 sigri BATE í Hvíta-Rússlandi. Voru Valsmenn ekki rétt stefndir ?
Jú, jú við vorum kannski bara full ákafir að færa inn á miðjunni og loka á þá. Þeir eru mjög flinkir í því að færa boltann í gegnum miðjuna, fluttu hann frá vinstri yfir á hægri, koma svo með háa fyrirgjöf og hann smell hitti hann," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals við Fótbolta.net eftir leik.
,,Þetta var náttúrulega þvert á okkar plön, ætluðum að halda þeim frá því að skora og koma á þá marki og koma þeim þannig úr jafnvægi og skora síðan seinna markið. Þetta gerði þetta bara mjög erfitt."
Þrátt fyrir tapið var Willum ánægður með frammistöðuna hjá lærisveinum sínum, en segir að það hafi allt verið gert sem að þeir lögðu upp með nema að skora mörk og halda hreinu.
,,Ég er mjög ánægður með liðið að þrátt fyrir þetta mark í byrjun leiks, héldur þeir áfram og keyrt á þá. Við ætluðum svo sannarlega að einblína á þennan leik og reyna að sigra hann og mér fannst vinnan góð í liðinu og við gerðum í rauninni allt sem að við ætluðum að gera, nema að halda markinu hreinu og skora mörk."
Hvít-Rússarnir unnu rimmuna samtals 3-0 og voru þeir ekki bara of stór biti fyrir Valsmenn ?
,,Já, þegar að uppi er staðið þá hlýtur það að vera, vegna þess að þeir standa uppi að lokum með heildarmarkatöluna 3-0."
Næsti leikur hjá Val er gegn Grindavík í Landsbankadeildnni á sunnudaginn og deildin er eina keppnin sem að Valur er eftir í þannig að þeir einbeita sér bara að því núna.
,,Það er ekkert annað að gera. Við eigum mikilvægan leik á sunnudaginn og byrjum núna að undirbúa okkur yfir hann," sagði Willum Þór Þórsson að lokum í samtali við Fótbolta.net


