Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Blackburn hefur samþykkt tilboð Aston Villa í Friedel
Blackburn hefur samþykkt tilboð Aston Villa í markvörðinn Brad Friedel en tilboðið hljóðaði uppá 2 milljónir punda.

Þessi bandaríski markvörður hefur verið á Ewood Park síðustu átta ár en sagði félaginu fyrr í mánuðinum að hann vildi fara.

Manchester City hafði líka áhuga á Friedel en Villa leiðir nú kapphlaupið um þennan snjalla markvörð.

Martin O´Neill hefur verið að leita af markverði eftir að Scott Carson gekk í raðir West Brom en hann var á láni hjá Villa á síðustu leiktíð.
Slapp
banner
banner