Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Birnir: Hefði farið í Keflavík þó þeir væru í neðsta sæti
Jóhann Birnir í búningi Keflavíkur í gærkvöld.
Jóhann Birnir í búningi Keflavíkur í gærkvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann skrifar undir samninginn.
Jóhann skrifar undir samninginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann með Kristjáni þjálfara og Þorsteini formanni.
Jóhann með Kristjáni þjálfara og Þorsteini formanni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er gaman að vera kominn heim aftur," sagði Jóhann Birnir Guðmundsson nýjasti leikmaður Keflavíkur í gærkvöld er hann skrifaði undir þriggja ára samning við sitt gamla félag en hann kemur frá sænska liðinu Gais þar sem hann hefur verið undanfarin ár.

,,Þetta var ekkert óvænt, þeir höfðu samband við mig fyrir einum og hálfum mánuði svo ég hafði þetta alltaf bakvið eyrað. Ég vissi reyndar fyrir tímabilið að þetta væri möguleiki og núna ákvað ég að slá til," sagði Jóhann Birnir við Fótbolta.net.

,,Mér leið rosalega vel úti hjá því félagi sem ég var og í borginni. En ég var ekki að spila eins mikið og ég vildi spila og því vildi ég frekar koma hingað og taka þátt í þessu sem er að gerast hérna."

Keflavík er í toppsæti Landsbankadeildarinnar með eins stigs forskot á FH sem er í öðru sæti. Liðið verðskuldar sætið fyllilega og spilar einn skemmtilegasta fótboltann í deildinni.

,,Það er ótrúlega gaman að sjá hvað þeir eru búnir að standa sig vel og eru með skemmtilegt lið," sagði Jóhann. ,,Ég hef fylgst með eins mikið og ég hef getað. Ég hef séð mörkin í fréttunum og svo fylgist ég eins mikið með og hægt er á netinu. Það er vel að þessu staðið á Fótbolta.net."

Jóhann Birnir hefur þó ekki enn séð heilan leik með Keflavíkur liðinu frá í sumar en ætlar að bæta úr því eftir að hafa fengið upptökur af leikjum. ,,Ég var einmitt að fá síðustu fjóra leiki hjá Kristjáni á videoi svo ég mun liggja yfir því," sagði hann.

Keflavík er með öflugan leikmannahóp margra manna og ljóst að barist er um allar stöður í liðinu, en hvar sér Jóhann sig passa inn í liðið.

,,Einhversstaðar á miðjunni, ég tel mig geta leyst allar stöður þar en þjálfarinn verður að ráða, ég spila þar sem hann setur mig," sagði hann. ,,Ég geri ekki ráð fyrir að byrja í fyrsta leik en ég ætla mér í liðið eins fljótlega og ég get. En það er mikil samkeppni í liðinu og það er erfitt að komast í lið sem gengur svona vel, en það er áskorun fyrir mig."

Jóhann Birnir var heldur seinn á fréttamannafundinnn í K-húsinu í Keflavík í gærkvöld og liðið á leik gegn Breiðablik í bikarnum í kvöld. Óttast hann ekkert að vera kominn strax í agabann hjá þjálfaranum fyrir seinkomuna?

,,Það er aldrei að vita, ég veit það ekki, en mér sýnist hann ágætlega hress," sagði Jóhann hlæjandi og gjóaði augunum að Kristjáni Guðmundssyni þjálfara. ,,Ég var að koma úr ísbaði. Ég kynntist ísbaði líka úti en ég er ekkert sérlega mikið fyrir það. Ef Kristján segir mér að fara í ísbað þá hlýði ég því samt."

Jóhann lék með Keflavík á árunum 1994-1997 í heildina 49 leiki og skoraði í þeim 13 mörk. Eftir það hélt hann utan í atvinnumennsku, fyrst hjá Watford á Englandi, þá Lyn í Noregi og að lokum Gais í Svíþjóð, en afhverju hættir hann atvinnumennskunni og snýr aftur heim?

,,Það eru margar ástæður, bæði er strákurinn minn að fara í skóla og svo verð ég 31 árs gamall á árinu. Keflavík bauð mér lengri samning og ég get nýtt mér það og farið í nám með fótboltanum. Þetta var mjög góð lending og margt sem spilaði inní."

,,Svo er ekki verra hversu vel liðinu gengur og þetta er félagið mitt, mig langaði að taka þátt í því. Samt hefði ég örugglega farið í Keflavík ef liðið hefði verið í neðsta sæti. Annaðhvort Keflavík eða Víðir Garði. En Keflavík stefnir að titlinum, það er engin launung."


Jóhanni hefur verið úthlutað treyjunúmeri 14 hjá Keflavík og klæddist þeirri treyju fyrst við undirskriftina í gærkvöld og verður væntanlega með hana klára í leikinn gegn Breiðablik í kvöld ef hann skyldi koma inná. En afhverju 14?

,,Ég bað ekki um 14 heldur fékk það bara og það er fínt, Johan Cruyff var í þessu númeri. Svo var Haukur Ingi, besti vinur minn, númer 14 þegar hann var í Keflavík síðast, svo þetta er bara flott tala," sagði hann.

Haukur Ingi lék með Jóhanni í Keflavík á sínum tíma en leikur í dag með Fylki. Það hefur áður komið í umræðuna fyrir nokkrum árum að Jóhann færi í Fylki þar sem hann myndi leika með Hauki Inga að nýju en nú ætlar Jóhann að hvetja vin sinn til að koma í Keflavík að nýju.

,,Það væri ekki verra, ég ligg í honum núna. Á sínum tíma reyndi hann að fá mig í Fylki en núna þarf ég að fara að liggja í honum," sagði Jóhann Birnir að lokum.
Slapp
banner