Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson: Erum sterkari á öllum sviðum í ár
Kristján Guðmundsson í gærkvöld.
Kristján Guðmundsson í gærkvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján bregður á leik í smá hugleiðslu ásamt Jóhanni Birni og Þorsteini formanni í gærkvöld.
Kristján bregður á leik í smá hugleiðslu ásamt Jóhanni Birni og Þorsteini formanni í gærkvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson hefur gert frábæra hluti með lið Keflavíkur í sumar en liðið er í toppsæti Landsbankadeildarinnar núna þegar mótið er rúmlega hálfnað og lætur engan bilbug á sér finna. Hann fékk gríðarlega góðan liðsstyrk í gærkvöld þegar Jóhann Birnir Guðmundsson kom til liðsins frá Gais í svíþjóð.

,,Já þakka þér fyrir, það er rétt að nefna Jóa og þá sem hafa komið til okkar alvöru leikmenn," sagði Kristján í samtali við Fótbolta.net í gærkvöld aðspurður hvort hann fái bara alvöru leikmenn til liðs við félagið þetta árið.

Jóhann Birnir hafði áður leikið með Keflavík á árunum 1994-1997 en hann getur leikið allar stöður á miðjunni og Kristján veit að hann mun styrkja lið sitt mikið.

,,Ég hugsa að hann komi til með að styrkja okkur verulega ef eitthvað kæmi uppá á lokakaflanum. Mér heyrist og sýnist að það séu fleiri lið að reyna að styrkja sig fyrir seinni hlutann. Lið sem eru í kringum okkur í töflunni og það má segja öll liðin. Nokkur lið eru þegar búin að því," sagði Kristján.

Mikið hefur verið talað um að gengi Keflavíkur í sumar hafi verið mjög óvænt en það kom fulltrúum Fótbolta.net lítið á óvart eftir að hafa heimsótt félagið kvöldið fyrir mót þegar Hólmar Örn Rúnarsson og Hörður Sveinsson gengu í raðir félagsins enda virtist eitthvað í andrúmloftinu gefa til kynna að eitthvað stórt væri í vændum hjá liðinu. Hvað hefur breyst í ár frá í fyrra?

,,Við leituðum ákveðinna leiða í þvi hvernig við gætum orðið betri en undanfarin þrjú tímabil sem ég hef verið með liðið. Við ákváðum að efla ákveðna þætti í liðinu sem hefur tekist. Það hefur greinilega verið jákvæður andi og jákvæð hugsun í hópnum og það sést bæði þegar við erum að spila og á æfingum og í kringum þetta allt."

Kristján lenti í nokkru mótlæti með liðið á síðustu leiktíð þegar hann fór að missa sterka leikmenn úr liðinu á miðju tímabili þar sem félagið tók tilboðum í þá frá erlendum liðum. Hann hafði þolinmæði hjá félaginu og ákvað að leggja ekki árar í bát, er hann ekki að fá það til baka núna með góðu gengi liðsins?

,,Það sem sneri mótinu í fyrra var að við misstum tvo menn á miðjunni. Þó svo ákveðnir fjölmiðlungar vilji benda á aðra hluti þá var það bara ástæðan að við misstum tvo og nánast þrjá leikmenn úr byrjunarliðinu. Þá varð viðsnúningur en við dveljum ekkert við það, og ákváðum að loka á allt það. En það er rétt að það er gott að það er líka til þessi hlið af því að þjálfa lið að hlutirnir geta gengið upp og eru að gera það þessa stundina. Það er okkar verk að þetta haldi áfram, og við náum áfram að skora og vinna leiki."

Mótspyrnan sem Kristján lenti í á síðustu leiktíð þegar hann missti þessa leikmenn var mikil og sérstaklega þar sem gengi liðsins fór að dala á sama tíma og liðið endaði í sjötta sæti deildairnnar með 21 stig eftir gott gengi framan af. Þrátt fyrir mótlætið gerði Kristján tveggja ára samning við félagið strax að mótinu loknu. Hafði hann alltaf trú á að þessi viðsnúningur gæti orðið nú í ár?

,,Já þannig séð og því hélt ég áfram í starfinu. Stjórnin hafði líka trú á að við gætum gert góða hluti og höfðum forsendur til þess. Það kom því miður upp sú staða með þessa leikmenn á þessum tímapunkti í fyrra að þessir leikmenn voru seldir og lánaðir. Núna er staðan þannig að þótt það kæmi tilboð getum við sagt sterkara nei en nei-in sem við sögðum í fyrra. Við erum sterkari núna á öllum sviðum í rekstrinum á deildinni og uppsetningunni á liðinu."
Slapp
banner
banner