Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 07:55
Hafliði Breiðfjörð
Valur ræðir við ÍA í dag um kaup á Bjarna Guðjónssyni
Börkur Edvardsson formaður Vals.
Börkur Edvardsson formaður Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Börkur Edvardsson formaður knattspyrnudeildar Vals sagði í beinni útsendingu í fréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöld að félagið sé byrjað í óformlegum viðræðum við ÍA um að fá Bjarna Guðjónsson fyrirliða liðsins í sínar raðir.

Bjarni hefur verið orðaður við Val, KR og FH upp á síðkastið eða síðan Guðjón Þórðarson faðir hans hætti þjálfun ÍA og Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður á RÚV spurði hann í gærkvöld hvort hann færi í Val.

,,Það er alls óvíst en við munum gera allt sem í valdi okkar stendur að fá hann í Val því það er mikill hugur í Valsmönnum að klófesta þennan frábæra leikmann," svaraði Börkur á Rúv í gærkvöld.

Sögusagnir hafa verið uppi um að hluti af samningi gæti orðið að Valur láti Hafþór Ægi Vilhjálmsson í skiptum fyrir Bjarna auk peningagreiðslu en Börkur segir það ekki rétt. ,,Nei það er ekkert til í að hann færi í skiptum en þeir gerðu ákveðna fyrirspurn í Hafþór Ægi sem við höfnuðum," sagði Börkur. ,,Að sjálfsögðu muynum við reyna allt sem við getum til að kaupa Bjarna," bætti hann við.

,,Við erum byrjaðir í óformlegum viðræðum við skagamenn um þetta mál en ég býst við að það muni halda áfram á morgun og vonandi muni þetta gerast hratt," sagði hann og aðspurður að lokum hvort fundur væri í málinu í dag sagði hann. ,,Já, ég get ekki neitað því."
Slapp
banner
banner
banner