Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 10:03
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: KSÍ 
Mörkum fjölgar í Landsbankadeild karla en fækkar í kvenna
Kvenaboltinn
Björgólfur Takefusa hefur skorað flest í sumar.
Björgólfur Takefusa hefur skorað flest í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Zivanovic hefur skorað grimmt undanfarið og er næstur á eftir Björgólfi.
Zivanovic hefur skorað grimmt undanfarið og er næstur á eftir Björgólfi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það sem af er móti í Landsbankadeild karla hafa leikmenn reimað vel á sig skotskóna en að meðaltali hafa verið skoruð 3,06 mörk að meðaltali í leikjunum 72 í sumar. Í fyrra voru skoruð að meðaltali 2,99 mörk að í Landsbankadeild karla.

Þetta er með allra mesta móti en árið 1997 voru skoruð 3,07 mörk að meðaltali í deildinni. Flest komu mörkin í síðustu umferð, þeirri tólftu í röðinni en þá voru skoruð 26 mörk í leikjunum sex. Í fyrstu umferðinni og þeirri fimmtu voru skoruð 24 mörk. Fæst hafa mörkin verið 13 í umferð og hefur það gerst þrisvar sinnum.

Flest voru mörkin í 3-6 sigri Grindavíkur á Breiðablik í fjórðu umferð og tvisvar sinnum hefur verið boðið upp á átta marka leiki. Hingað til hafa tveir leikir endað með markalausu jafntefli en þeir voru fimm á síðasta tímabili. Fjögur félög, Fjölnir, KR, Fram og Fylkir hafa enn ekki gert jafntefli í Landabankadeild karla í ár og FH hefur gert eitt 4-4 jafntefli.

Mörkunum hefur hinsvegar heldur fækkað í Landsbankadeild kvenna það sem af er. Virðist sem að deildin í ár sé jafnari en áður og stórsigrar mun fátíðari heldur en árin á undan. Það sem af er búið að leika 54 leiki í deildinni og hafa verið skoruð að meðaltali 3,48 mörk í leik. Til samanburðar þá voru skoruð 4,5 mörk að meðaltali í Landsbankadeild kvenna á síðasta ári og árið 2006 voru mörkin hvorki fleiri né færri en 6,2 að meðaltali.

Flest mörk voru skoruð í níundu umferð en þá voru skoruð 27 mörk í leikjunum fimm. Fæst urðu mörkin í sjöttu umferð en þá voru skoruð 12 mörk. Ennþá á eftir að spila einn leik úr áttundu umferð, leik Þórs/KA og Stjörnunnar en í þeirri umferð hafa verið skoruð 22 mörk til þessa. Flest hafa mörkin verið í 1-9 sigri Vals á Keflavík og skoruð voru níu mörk í 5-4 sigri Breiðabliks á Fjölni. Tveimur leikjum hefur lokið með markalausu jafntefli til þessa og er það jafn oft og allt tímabilið í fyrra. Engum leik lauk með markalausu jafntefli í Landsbankadeild kvenna árið 2006.

Það verður fróðlegt að fylgjast með markaskoruninni í Landsbankadeildunum sem eftir er af tímabilinu en næsta umferð í Landsbankadeild karla hefst sunnudaginn 27. júlí með tveimur leikjum.
Slapp
banner
banner
banner