Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 10:19
Magnús Már Einarsson
Magnús Þormar í Keflavík (Staðfest)
Ómar Jóhannsson og Magnús Þormar.
Ómar Jóhannsson og Magnús Þormar.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Markvörðurinn Magnús Þormar er genginn í raðir Keflvíkinga en hann kemur til félagins frá Grindavík.

Magnús er uppalinn hjá Keflavík en fyrir síðasta tímabil fór hann frá félaginu og gekk til liðs við Stjörnuna.

Í vetur gekk þessi 24 ára gamli markvörður til liðs við Grindavík og lék fyrstu tvo leiki liðsins í Landsbankadeildinni en missti síðan sæti sitt til Zankarlo Simunic.

Magnús er nú kominn til Keflvíkinga en hann hefur fengið leikheimild með liðinu og verður væntanlega í leikmannahópnum gegn Breiðablik í VISA-bikarnum í kvöld.

Þá hefur Jóhann Birnir Guðmundsson einnig fengið leikheimild með Keflavík og er því klár í slaginn fyrir leikinn gegn Blikum í kvöld.
Slapp
banner
banner
banner