Heimild: Sky
Carlos Tevez leikmaður Manchester United segir að félagið eigi að hlusta á Cristiano Ronaldo um það hvort hann vilji fara til Real Madrid.
Framtíð Ronaldo hefur verið í umræðunni í allt sumar og hefur Ronaldo látið hafa það eftir sér að hann vilji fara en United segja hann ekki til sölu.
,,United liðið er með frábæra leikmenn og þar á meðal Cristiano Ronaldo," sagði Tevez.
,,Það er alveg ljóst að hann er okkur mjög mikilvægur en þetta er hans persónulega ákvörðun, sem hann einn tekur."
,,Ég skil Ronaldo, allir leikmenn vilja spila fyrir Real Madrid en á hinn bóginn þá held ég að allir vilji spila fyrir Manchester United en það ætti að virða ákvörðun hans."
,,Ég hef ekki talað við hann en þegar svona hlutir gerast þá líður hvorugu liðinu vel," sagði Tevez.



