Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 11:28
Magnús Már Einarsson
Eggert Sigmunds í KS/Leiftur - Töluðu við marga markverði
Eggert Sigmundsson.
Eggert Sigmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Fannar
Eggert Högni Sigmundsson mun verja mark KS/Leifturs gegn Stjörnunni í fyrstu deild karla annað kvöld þar sem Þorvaldur Þorsteinsson markvörður liðsins tekur út leikbann.

Eggert, sem er 34 ára, hefur ekki leikið á Íslandsmótinu síðan árið 2003 en þá var hann á mála hjá Vaski í þriðju deildinni. Eggert lék hins vegar í marki KA í mörg ár þar áður.

Ragnar Hauksson þjálfari KS/Leifturs var búinn að kanna marga kosti í markvarðarstöðunni. ,,Ætli ég hafi ekki verið búinn að hringja í svona 30 markmenn en við verðum bara að bíða og sjá hvernig karlinn stendur sig," sagði Ragnar við Fótbolta.net í dag en margir markverðir voru tilbúnir til að spila leikinn en gátu það ekki.

,,Það voru margir sem voru til í þetta en þessi blessaði félagaksiptagluggi hjá KSÍ hamlar þetta allt. Ef leikmenn hafa skipt um félag á þessu ári eða spilað einn leik á Íslandsmóti þá máttu þeir koma til mín en þeir mættu ekki fara til baka. Það var vandamálið."

Þorvaldur fékk rauða spjaldið gegn Þór í síðustu umferð og þar sem KS/Leiftur var ekki með neinn varamarkvörð á bekknum fór framherjinn Oliver Jaeger í markið og stóð sig vel.

Ragnar segir hafa komið til greina að hafa Jaeger í markinu á morgun en horfið hafi verið frá því þar sem þrír leikmenn taka út leikbann á morgun og því þurfi Jaeger að leika sem útileikmaður. Auk Þorvaldar eru Sandor Forizs og Ragnar í leikbanni á morgun og því verður Jaeger ekki í markinu.

,,Hann kom klárlega til greina en við erum tveir í banni og þá hefðum við misst þriðja útileikmanninn út úr liðinu. Doddi (Þórður Birgisson) er meiddur og ég í banni þannig við megum ekkert við því framlínulega séð að missa hann líka," sagði Ragnar Hauksson við Fótbolta.net í dag.
Slapp
banner
banner
banner