Heimild: Sky
Liverpool hefur keypt framherjann David Ngog frá Paris Saint Germain fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 19 ára gamli Frakki hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool.
Ngog er frændi Jean-Alain Boumsong varnarmanns Newcastle, en hann sló í gegn með PSG á síðustu leiktíð þrátt fyrir dapurt gengi liðsins í frönsku deildinni.
Ngog er fjórði leikmaðurinn sem Rafa Benitez fær í aðallið Liverpool í sumar en áður hafði félagið krækt í Andrea Dossena, Diego Cavalieri og Philipp Degen.


