Árni Gautur Arason fyrrum landsliðsmarkvörður æfir með KR-ingum þessa stundina en hann leitar sér að nýju liði. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag
Árni leitar af félagi en hann lék síðast með Thanda Royal Zulu í Suður Afríku.
,,Það hafa nokkur félög, þar á meðal í Noregi, sýnt mér áhuga en ég hef ekki tekið neina ákvörðun um hvað ég geri,“ sagði Árni Gautur Arason við Morgunblaðið.
Árni, sem hefur verið einn besti markvörður landsins um árabil, hefur æft með KR-ingum síðustu þrjár vikurnar og æfir að auki sjálfur á morgnana og segist vera í góðu formi.
,,Það fer vonandi að skýrast hvað tekur við hjá mér og sem stendur er stefnan hjá mér að komast aftur út. Á meðan er fínt að fá að æfa með KR,“ sagði Árni Gautur sem hefur metnað til að spila með landsliðinu.
,,Það er erfitt að segja hvar ég stend gagnvart landsliðinu. Ég hef ekki heyrt frá neinum sem stýrir málum þar í nokkuð langan tíma. Ég er samt í góðu formi og það er stutt síðan ég spilaði en auðvitað er æskilegt að maður spili reglulega
til að vera í landsliðinu."
,,Aðalatriðið hjá mér er hins vegar núna að finna félag til að spila með og eftir það kemur í ljós hvort ég fæ tækifæri á ný með landsliðinu. Ég hef enn metnað fyrir því að spila fyrir Íslands hönd og stefni á að gera það,“ sagði Árni Gautur sem á að baki 64 landsleiki.

