Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 15:48
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sporting Life 
Marco Senna hafnaði Fenerbache
Marco Senna fyrirliði Villarreal hafnaði því að ganga til liðs við tyrkneska liðið Fenerbache.

Luis Aragones nýráðinn þjálfari liðsins vildi fá Senna í sínar raðir en hann var lykilmaður hjá Aragones þegar Spánverjar unnu EM í sumar.

,,Á þessum tímapunkti þá vil ég spila á næsta Heimsmeistaramóti með Spánverjum og ég vona að ég geti unnið Meistaradeildina með Villarreal, það er draumur minn," sagði Senna.

,,Ég er búinn að vera í sex ár á Spáni og ég elska Villarreal."

,,Þegar samningur minn rennur út þá mun ég að öllum líkindum fara til Brasilíu þar sem ég er að byggja hús til að búa með konunni minni og drengnum mínum."

Slapp
banner
banner