Heimild: Sky
Chelsea hefur staðfest að aðaltakmark þeirra í sumar sé að reyna að fá Robinho leikmann Real Madrid.
Peter Kenyon stjórnarformaður Chelsea sagði í dag að félagið væri í viðræðum við Real Madrid.
,,Við getum staðfest áhuga okkur á Robinho og við höfum rætt við félagið. Þetta er enn í gangi og við höfum mikla trú á hæfileikum hans," sagði Kenyon.
,,Ef við fáum hann væri það góð viðbót en ef það gerist ekki þá er það mál búið að hálfu Chelsea."


