Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 15:57
Gunnar Gunnarsson
Þjóðverjar í úrslitaleikinn á Evrópumóti U19 landsliða
Þjóðverjar eru engum líkir í fótboltanum og koma sér yfirleitt alltaf í úrslitaleikina á stórmótum í knattspyrnu. Ekki varð nein undantekning á Evrópumóti U19 landsliða sem stendur nú yfir í Tékklandi.

Hinir þýsku lögðu að velli heimamenn, Tékka í undanúrslitum 2-1. Leikurinn fór í framlengingu en varamaðurinn Richard Sukuta-Pasu reyndist hetja Þjóðverja þegar hann skoraði sigurmarkið á 119. mínútu.

Úrslitaleikurinn fer fram á laugardaginn en þar mun þýska stálið glíma við Ítali sem unnu Ungverja 1-0 með sigurmarki frá Fernando Forestieri miðjumanni Siena.
Slapp
banner
banner