KFG úr 3.deild hefur fengið góðan liðsstyrk því Elvar Freyr Arnþórsson hefur ákveðið að leika með liðinu út tímabilið.
Elvar Freyr, sem er tvítugur, lék stórt hlutverk í liði Stjörnunnar á síðustu leiktíð.
Hann skoraði þá fimm mörk í sautján leikjum í fyrstu deildinni en í ár hefur hann einungis leikið tvo leiki með Stjörnunni.
Elvar hefur verið að ná sér af axlarmeiðslum og mun því leika með KFG til loka þessarar leiktíðar.
Hann hefur þegar fengið leikheimild með KFG og getur því leikið með liðinu gegn BÍ/Bolungarvík á laugardaginn.



