Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 18:57
Gunnar Gunnarsson
Eiður í byrjunarliði Börsunga í æfingaleik gegn Hibernian
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Börsungar eru að hefja undirbúning sinn fyrir komandi tímabil og leika tvo æfingaleiki í Skotlandi á næstu dögum.

Eiður Smári hefur greinilega hlotið náð fyrir augum hins nýja þjálfara, Josep Guardiola því kappinn er í byrjunarliði liðsins sem er að etja kappi við Hibernian.

Eiður spilar á miðjunni og var rétt í þessu að koma Barcelona yfir í leiknum strax á áttundu mínútu en auk hans eru Thierry Henry og Lionel Messi í liðinu.

Daniel Alves er að spila sinn fyrsta leik í búningi Katalóníuliðsins og einnig er Gerald Pique í vörninni eftir komuna frá Manchester United.
Slapp
banner