Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 22:57
Brynjar Ingi Erluson
Umfjöllun: Fjölnir áfram eftir rólegan leik í Grafarvogi
Það var mikill baráttuandi í kvöld
Það var mikill baráttuandi í kvöld
Mynd: Fotbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Tómas Leifsson skorar hér markið
Tómas Leifsson skorar hér markið
Mynd: Fotbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Ólafur Páll Snorrason var ferskur í kvöld
Ólafur Páll Snorrason var ferskur í kvöld
Mynd: Fotbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Gunnar Már í leiknum í kvöld
Gunnar Már í leiknum í kvöld
Mynd: Fotbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Gangur leiksins:
Fjölnir 1-0 Víkingur
1-0 Tómas Leifsson ('36)

Fjölnir og Víkingur mættust í kvöld í Grafarvogi í 8-liða úrslitum VISA bikarsins, þar sem leikurinn bauð ekki uppá mörg færi.

Gunnar Már átti hættulegt færi, eftir smá vandræðagang í vörn Víkinga, en Ingvar Þór Kale markvörður Víkinga varði meistaralega vel úr teignum.

Fjölnismenn sóttu meira, og fékk Ólafur Páll boltann upp hægri kantinn og lagði hann fyrir Illuga Þór sem hamraði boltanum yfir markið.

Annars gerðist lítið markvert fyrstu 20. mínúturnar í leiknum, og sýndu bæði lið frábæra baráttu framan af.

Pétur Viðarsson, leikmaður Víkings fékk gott færi á 22. mínútu þegar hann fék sendingu upp hægra megin, hann hamraði boltanum, en Hrafn Davíðsson, markvörður Fjölnis varði vel í markinu.

Á 34. mínútu geystist Ólafur Páll upp vinstri kantinn, og átti fína sendingu fyrir og þar kom Tómas Leifsson á ferðinni og skallaði boltann rétt framhjá markinu.

Það dró til tíðinda á 36. mínútu þegar Tómas ffékk góða sendingu inn fyrir í teig Víkinga og átti hann ekki í erfiðleikum með að leggja knöttinn framhjá Ingvari Þór Kale og í netið.

Illugi Þór fékk gott skot á mark Víkinga undir lok fyrri hálfleiks, en Ingvar Þór ver boltann út sem fór til Gunnars Má, sem skaut boltanum yfir, en Garðar Örn, dómari leiksins var búinn að dæma aukaspyrnu á Gunnar.

Tómas var allur í öllu í sóknarleik Fjölnis í dag, en á 57. mínútu fékk hann bolta úti vinstra megin, en skot hans fór yfir Ingvar Þór og yfir netið.

Á 65. mínútu fengu Fjölnismenn aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Ólafur Páll Snorrason tók spyrnuna, en Ingvar Þór varði vel yfir markið og í horn.

Fjölnismenn sóttu mun meira í síðari hálfleik, og fór boltinn sjaldan yfir miðju hjá Víkingum.

Pétur Örn Svansson átti fínt færi fyrir Víkinga á 81. mínútu, en skot hans fór rétt yfir Hrafn í markinu hjá Fjölni.

Ólafur Páll ógnaði aftur úr aukaspyrnu úr lúmsku færi af 36 metra færi, laus bolti þar sem Ingvar Þór varði yfir. Fjölnir fengu hornspyrnu þar sem Kristján Hauksson skallaði rétt yfir.

Gunnar Már átti fínt færi 91. mínútu leiks, en þrumaði boltanum rétt framhjá Ingvari í markinu. Heimamenn sóttu mun meira í síðari hálfleik.

Fjölnir með sigur á Víkingi í frekar tilþrifalitlum leik, og síðari hálfleikurinn frekar slappur. Þar með eru Fjölnismenn komnir í undanúrslit VISA bikarsins, og get því endurtekið leikinn frá því í fyrra, þegar þeir komust í úrslitaleikinn gegn FH en töpuðu með naumindum.






Fjölnir: Hrafn Davíðsson (M), Gunnar Valur Gunnarsson, Gunnar Már Guðmundsson, Ólafur Páll Johnson, Magnús Ingi Einarsson (F), Ólafur Páll Snorrason, Tómas Leifsson(Kolbeinn Kristinsson '92), Óli Stefán Flóventsson, Davíð Þór Rúnarsson(Andri Valur Ívarsson '64), Illugi Þór Gunnarsson(Ómar Hákonarson '80), Kristján Hauksson.
Ónotaðir varamenn: Þórður Ingason (M), Pétur Georg Markan, Ágúst Þór Gylfason, Ásgeir Aron Ásgeirsson.

Víkingur: Ingvar Þór Kale (M), Jimmy Hoyer, Milos Glogovac, Gunnar Kristjánsson(Brynjar Orri Bjarnason '79), Pétur Örn Svansson, Christopher Steven Vorenkamp(Egill Atlason '68), Pétur Viðarsson, Þórhallur Örn Hinriksson, Kristján Vilhjálmsson, Þorvaldur Sveinn Sveinsson(Daníel Hjaltason '63), Halldór Smári Sigurðsson.
Ónotaðir varamenn: Runólfur Sveinn Sigmundsson, Stefán Kári Sveinbjörnsson, Kjartan Ólafsson (M), Ivan Milenkovic.

Gult Spjald: Þórhalldur Hinriksson (Víkingur, '30), Pétur Örn Svansson (Víkingur, 39), Halldór Smári Sigurðsson (Víkingur, '60)

Dómari: Garðar Örn Hinriksson, ágætur
Aðstæður: Frábærar, smá vindur og sólin skein á völlinn.
Maður leiksins: Tómas Leifsson (Fjölnir)

Slapp