Nenad Zivanovic í baráttu við Gujón Árna Antoníusson sem skoraði fyrsta mark leiksins eftir góðan einleik.
Breiðablik 3 - 2 Keflavík:
0-1Guðjón Árni Antoníusson (12)
1-1 Jóhann Berg Guðmundsson (14)
2-1 Jóhann Berg Guðmundsson (46)
2-2 Guðmundur Steinarsson (64)
3-2 Magnús Páll Gunnarsson (82)
0-1Guðjón Árni Antoníusson (12)
1-1 Jóhann Berg Guðmundsson (14)
2-1 Jóhann Berg Guðmundsson (46)
2-2 Guðmundur Steinarsson (64)
3-2 Magnús Páll Gunnarsson (82)
Breiðablik tók á móti Keflavík í átta liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld á Kópavogsvelli. Þessi lið mættust á sama stað í keppninni í fyrra en þá báru Blikar sigur 3-1.
Ein breyting var á liði Keflavíkur sem gerði jafntefli við Val um síðustu helgi, Guðmundur Steinarsson kom til baka eftir meiðsli en Þórarin Brynjar Kristjánsson fór á bekkinn. Hjá Blikum var hinsvegar engin breyting.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur án þess þó að skapa teljandi vandræði fyrir Blika. Það gerðist hinsvegar á 12. mínútu þegar Guðjón Árni Antoníusson skoraði.
Hann fékk boltann á hægri kantinum og lék á varnarmann Blika og setti boltann í fjærhornið. Vel gert hjá þessum skemmtilega bakverði.
Eftir þetta mark þá elfdust Blikar mikið og það bar árangur fjórum mínútum síðar þegar Jóhann Berg Guðmundsson fékk boltann. Hann var með Einar Orri Einarsson í bakinu en náði að komast nægilega langt frá honum og lét skotið ríða af marki framhjá Ómari Jóhanssyni. Vel gert hjá Jóhanni sem hefur verið heitur undanfarið.
Þegar fyrri hálfleikurinn var tæplega hálfnaður áttu Blikar laglega sókn sem endaði með skoti Jóhanns Berg sem var þó framhjá.
Andartaki síðar voru Keflvíkingar nálægt því að skora, Guðmundur Steinarsson skaut að marki en Casper Jacobsen varði í horn og úr hornspyrnunni voru Keflvíkingar nálægt því að skora.
Þegar þrettán mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum var Nenad Zivanovic í dauðafæri, hann var einn á móti Ómar Jóhannsson varði vel frá honum.
Blikar voru betri en Keflvíkingar stóran hluta af fyrri hálfleik og Arnór Sveinn Aðalsteinsson átti síðasta færi fyrri hálfleik en skalli hans fór framhjá. Staðan 1-1 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja.
Seinni hálfleikurinn var ekki lang lífur þegar Jóhann Berg Guðmundsson skoraði sitt annað mark í leiknum. Hann fékk sendingu inn fyrir vörn Keflavíkur og setti boltann í fjærhornið, stöng og inn. Vel gert hjá pilti sem hefur skorað fimm mörk í fimm leikjum.
Þegar sjö mínútur voru búnar af síðari hálfleik gerði Kristján Guðmundsson sínar þriðju breytingu á liðinu. Hann setti Jóhann Birnir Guðmundsson inná í sínum fyrsta leik frá því að hann gekk í raðir Keflvíkinga.
Þegar 63. mínútur voru búnar af leiknum átti Jóhann Birnir Guðmundsson laglegt skot að marki Blika sem endaði ofan á þverslánni.
Aðeins mínútu síðar jafnaðu Guðmundur Steinarsson leikinn. Simun Samuelsen sendi góðan bolta fyrir sem var beint á kollinn á Guðmundur sem skallaði í netið en Casper Jacobsen markvörður Blikar var þó í boltanum.
Á 68. mínútu átti Marel Baldvinsson skalla að marki Keflavíkur en Ómar Jóhannsson varði vel. Andartaki síðar var Magnús Sverrir Þorsteinsson í dauðafæri en skot hans var slakt og átti Casper Jacobsen ekki í vandræðum með að verja.
Þegar fjórtán mínútur voru eftir af leiknum átti Marel Baldvinsson góðan skalla að marki Keflavíkur eftir horn Arnars Grétarssonar en skalli Marels var rétt yfir markið.
Þegar sex mínútur voru eftir af leiknum komust Blikar yfir. Jóhann Berg skaut að marki, boltinn barst til Marels Baldvinsson sem skaut að marki en eftir klaps datt boltinn fyrir Magnús Páll Gunnarsson sem setti boltann í netið af stuttu færi.
Eftir þetta settu Keflvíkingar pressu á Blikana sem héldu þó út og eru komnir í undanúrslit.
Leikurinn var fjörugur eins og við mátti búast og hefði sigurinn getað dottið báðu meginn.
Breiðablik (4-4-2) Casper Jacobsen (M), Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Srdjan Gasic, Finnur Orri Margeirsson, Kristinn Jónsson, Nenad Petrovic, Arnar Grétarsson (F), Guðmundur Kristjánsson, Nenad Zivanovic (Magnús Páll Gunnarsson, 70), Jóhann Berg Guðmundsson (Olgeir Sigurgeirsson, 88), Marel Jóhann Baldvinsson.
Ónotaðir varamenn: Vignir Jóhanesson, Árni Kristinn Gunnarsson, Prince Racjomar, Guðmann Þórisson.
Keflavík (4-4-2) Ómar Jóhannsson (M), Guðjón Árni Antoníusson, Kenneth Gustafsson, Hallgrímur Jónasson, Nicolai Jörgensen (Brynjar Guðmundsson, 45), Magnús Sverrir Þorsteinsson, Einar Orri Einarsson (Hans Yoo Mathiesen, 45), Hólmar Örn Rúnarsson, Simun Samuelsen, Patrik Redo (Jóhann Birnir Guðmunsson, 52), Guðmundur Steinarsson (F).
Ónotaðir varamenn: Magnús Þormar (M), Magnús Þórir Matthíasson, Þórarinn Brynjar Kristjánsson, Hörður Sveinsson.
Maður leiksins Guðmundur Kristjánsson (Breiðablik)
Dómari: Einar Örn Daníelsson
Aðstæður: Völlurinn í góðu lagi og smá rok.
Áhorfendur: 1019 mættu á völlinn.




