Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 22:34
Magnús Már Einarsson
3.deild: Ýmir vann Kópavogsslaginn - Jafnt hjá Árborg og Ægi
Árni Páll Hafþórsson og Ársæll Jónsson berjast um boltann í leik Árborgar og Ægis.
Árni Páll Hafþórsson og Ársæll Jónsson berjast um boltann í leik Árborgar og Ægis.
Mynd: Guðmundur Karl
Ómar Ingi Guðmundsson skoraði fyrir Ými gegn Augnablik.
Ómar Ingi Guðmundsson skoraði fyrir Ými gegn Augnablik.
Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson
Tveir leikir fóru fram í þriðju deild karla í kvöld. Árborg og Ægir gerðu 1-1 jafntefli í A riðli og fyrrnefnda liðið er því sem fyrr í öðru sæti með átján stig en Ægismenn með fjórtán stig í fjórða sæti.

A riðill:

Árborg 1 - 1 Ægir
0-1 Ársæll Jónsson
1-1 Jón Auðunn Sigurbergsson

C riðill:

Ýmir 3 - 2 Augnablik
1-0 Ómar Ingi Guðmundsson
2-0 Samúel Arnar Kjartansson
3-0 Jóhann Björnsson
3-1 Hjörvar Hermannsson
3-2 Albert Guðmundsson

Ýmir úr Kópavogi sigraði í kvöld nágranna sína úr Augnablik í Kópavogsslag liðanna í kvöld. Liðin sem eru varalið HK og Breiðabliks eru bæði í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni en fyrir leikinn var Augnablik stígi ofar en lið Ýmis.

Fyrsti leikur liðanna lauk með öruggum sigri Ýmis og sama virtist ætla vera uppá teningnum í kvöld. Ómar Ingi Guðmundsson skoraði snemma leiks með góðu skoti frá vítateigshorni óverjandi út við stöngina.

Samúel Arnar Kjartansson bætti öðru marki við þegar fast skot varnarmenn Augnabliks ætluðu að hreinsa boltanum í burtu, boltinn fór í leikmann Augnabliks og aftur inní vítateig á Samúel Arnar sem var aleinn í dauðafæri og kláraði færið vel. Aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu en dómarinn gerði rétt að dæma markið gilt enda fór boltann af leikmanni Augnabliks.

Jóhann Björnsson sem nýlega gekk til liðs við Ými bætti svo þriðja markið undir lok fyrri hálfleiks. Þórhallur Siggeirsson tók þá hornspyrnu frá hægri, boltinn fór beint á kollinn á Jóhanni sem skallaði boltann, Valdimar Valdimarsson' varði en Jóhann tók frákastið og skoraði örugglega.

Augnabliksmenn náðu að minnka muninn með tveimur mörkum seint í síðari hálfleik, bæði eftir föst leikatriði.

Hjörvar Hermannsson og Albert Guðmundsson skoruðu þá en það dugði ekki til og Ýmismenn höfðu betur 3-2.
Slapp
banner
banner
banner