Tveir leikir fóru fram í annarri deild karla í kvöld. Víðir Garði sigraði Reyni Sangerði örugglega 6-2 í grannaslag og strákarnir í Gróttu gerðu góða ferð í Hveragerði og unnu þar Hamarsmenn 3-1 þar sem Ásmundur Guðni Haraldsson, spilandi þjálfari liðsins, skoraði tvívegis. Kíkjum á nánari umfjöllun um leikina.
Víðismenn unnu í fjörugum grannaslag:
Víðir 6 - 2 Reynir Sandgerði
1-0 Haraldur Axel Einarsson
2-0 Rastislav Lazorik
2-1 Stefán Örn Arnarson
3-1 Atli Rúnar Hólmbergsson
3-2 Jóhann Magni Jóhannsson (Víti)
4-2 Knútur Rúnar Jónsson
5-2 Knútur Rúnar Jónsson
6-2 Haraldur Axel Einarsson
Rautt spjald: Garðar Eðvaldsson (Reynir S.)
Víðir og Reynir áttust við í kvöld í 13.umferð annarar deildarinnar. Leikurinn var jafn til að byrja með og liðin skiptust á að sækja. Eftir 17. mínútna leik komust heimamenn í 1-0 þegar Haraldur Axel Einarsson átti gott skot utan við teig sem endaði í fjærhorninu.
Á 26.mínútu var sóknarmaður Víðis að sleppa í gegnum vörn gestanna þegar Garðar Eðvaldsson reif hann niður, aukaspyrna dæmd og Garðar fékk að líta rauða spjaldið.
Á 31.mínútu komust heimamenn í 2-0 þegar Ratislav Lasorik prjónaði sig í gegnum vörn gestanna og afgreiddi boltann með góðu skoti. Rétt fyrir þetta hafði Guðmundur Gísli Gunnarsson átt skot í þverslánna úr aukaspyrnu Reynismanna. Reynismenn gerðu breytingu á liði sínu strax eftir þetta. Ólafur Ívar Jónsson kom inn fyrir Anton Inga Sigurðsson.
Víðismenn sóttu nú af töluverðum krafti en Reynismenn vörðust vel. Staðan í leikhléi, 2-0 fyrir heimamenn.
Reynir gerðu tvær breytingar á liði sínu í hálfleik, þeir Hafsteinn Ingvar Rúnarsson og Stefán Örn Arnarsson kom inn fyrir Hafsteinn Friðriksson og Novak Popovic. Reynismenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og ætluðu sér greinilega að fá eitthvað útúr þessum leik, það reyndist þó erfitt manni færri. Eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik náðu þeir að minnka muninn þegar Stefán Örn afgreiddi boltann snyrtilega upp í marknetið eftir sendingu frá Marteini Guðjónssyni.
Aðeins fjórum mínútum síðar komust heimamenn að komast í 3-1 með stórglæsilegu marki Atla Rúnars Hólmbergssonar. Hann fékk þá boltann fyrir utan teig Reynismanna og þrumaði boltanum upp í markvinkilinn.
Á 56. mínútu fengu Reynismenn vítaspyrnu eftir að varnarmaður Víðis hafði varið boltann með hendi á marklínu. Jóhann Magni Jóhannsson fór á punktinn og skoraði örugglega. Staðan orðin 3-2 eftir ellefu mínútna leik í seinni hálfleik og allt í járnum ennþá.
Reynismenn sóttu stíft og reyndu að jafna metin en það nýttu heimamenn sér og geystust í skyndisóknir. Haraldur Axel tók á sprett upp kantinn í einu þeirra og náði knettinum, sendi hann fyrir á fyrirliðann, Knút Rúnar Jónsson sem stóð á einn og óvaldaður í teignum og skallaði boltann framhjá Helga Má í markinu.
Heimamenn komust svo í 5-2 eftir svipaða sókn og hér á undan, Haraldur fékk boltann á kantinum en nú renndi hann honum út í teiginn, beint í lappirnar á Herði Inga Harðasyni sem skoraði með skoti úr teignum.
Þegar 90. mínútur voru komnar á leikklukkuna kórónuðu heimamenn svo leik sinn þegar þeir skoruðu sitt sjötta mark. Reynismenn sendu þá knöttinn til baka á Víðismenn eftir að dómarinn hafði stöðvað leikinn vegna meiðsla, Víðismenn sendu boltann strax fram á Knút Rúnar sem slapp í gegnum vörn gestanna og setti boltann framhjá Atla í markinu.
Ummæli eftir leik:
Steinar Ingimundarson þjálfari Víðis:
,,Þetta var frábær sigur. Það er alltaf gaman að vinna grannaslagi en okkur er annt um Sandgerðingana en þetta eru fyrst og fremst þrjú stig fyrir okkur."
,,Við höldum bara áfram. Við erum með okkar markmið á hreinu og við vinnum bara eftir þeim."
,,Sandgerðingarnir spiluðu blússandi sóknarleik þannig að við fengum kannski fleiri tækifæri en ella. Sandgerðingarnir spiluðu vel og það er greinlegt að Bryngeir (Torfason) er að gera góða hluti þarna og búa til gott fótbotlalið."
Þjálfarinn skaut Gróttu upp í sjötta sætið:
Hamar 1 - 3 Grótta
0-1 Sölvi Davíðsson ('7)
0-2 Ásmundur Guðni Haraldsson ('13)
1-2 Ágúst Örlaugur Magnússon (Víti) ('62)
1-3 Ásmundur Guðni Haraldsson ('75)
Gróttumenn komu grimmir til leiks í Hveragerði í kvöld og náðu forystunni strax á sjöundu mínútu.
Garðar Guðnason geystist þá upp hægri kantinn og sendi boltann út á Sölva Davíðsson sem lék á varnarmann og skoraði.
Nokkrum mínútum síðar bætti Grótta við öðru marki en þá skoraði Ásmundur Guðni Haraldsson, spilandi þjálfari liðsins með skalla eftir hornspyrnu.
Staðan var 2-0 fyrir Gróttu í síðari hálfleik en eftir um það bil klukkutíma leik náðu Hvergerðingar að minnka muninn. Guðmundur Marteinn Hannesson braut á Milan Djurovic og vítaspyrna var dæmd.
Ágúst Örlaugur Magnússon steig á punktinn og skoraði af öryggi framhjá Ögmundi Rúnarssyni.
Brynjólfur Bjarnason slapp í gegn eftir þríhyrningsspil við Ásmund Guðna á 75.mínútu. Brynjólfur lék á markvörðinn og var í þröngri stöðu þannig að hann sendi boltann aftur á Ásmund sem skoraði.
Undir lokin fékk Hamar aðra vítaspyrnu en Ögmundur gerði sér lítið fyrir og varði frá Ágústi Örlaugi.
3-1 sigur Gróttu staðreynd en liðið hoppaði úr ellefta sætinu upp í það sjötta með þessum úrslitum og sýnir það vel hve jöfn baráttan er í deildinni.
Ummæli eftir leik:
Ásmundur Guðni Haralsdsson spilandi þjálfari Gróttu:
,,Við vorum búnir að tapa síðustu þremur leikjum en samt sem áður hefur verið stígandi þrátt fyrir lélegt gengi. Þetta small allt í dag og menn voru tilbúnir að leggja sig alla fram og klára þá, það var ekki flóknara en það."
,,Það var líka ánægjulegt að halda haus og klára leikinn. Við höfum misst leiki niður í jafntefli og annað á síðustu mínútunum. Það er mjög sterkt að ná þremur stigum á þessum velli, þetta er ekki auðveldasti völlur í heimi til að fara á."
