KR 3-2 Grindavík
1-0 Björgólfur Takefusa (‘4)
2-0 Gunnar Örn Jónsson (’11)
2-1 Gilles Mbang Ondo (’42)
2-2 Marinko Skarincic (’52)
3-2 Óskar Örn Hauksson (’55)
KR er komið í undanúrslit VISA-bikars karla eftir 3-2 sigur á Grindavík í frábærum leik á KR velli í kvöld en Stefán Logi Magnússon var hetja KR þegar hann varði vítaspyrnu í stöðunni 3-2.
KR og Grindavík höfðu mæst fyrir aðeins þremur dögum síðan í Landsbankadeildinni í leik sem fór fram í Grindavík. Þá var það Grindavík sem hafði betur en nú áttust liðin svo við í bikarnum og þá var það KR sem hafði betur í frábærum fótboltaleik.
KR-ingar gerðu eina breytingu á liði sínu, Viktor Bjarki Arnarsson sneri aftur í liðið eftir að hafa tekið út leikbann og á hans kostnað fór Atli Jóhannsson á bekkinn. Hjá Grindavík voru tvær breytingar. Jóhann Helgason og Tomasz Stolpa komu inn í byrjunarliðið og í þeirra stað fóru þeir Eysteinn Húni Hauksson og Bogi Rafn Einarsson á bekkinn.
Leikurinn byrjaði fjörlega því á annarri mínútu slapp pólski framherjinn Tomasz Stolpa einn á móti Stefáni Loga í marki KR en á einhvern ótrúlegan hátt tókst honum að skjóta framhjá markinu. KR-ingar brunuðu fram í sókn í vítateig Grindavíkur fór boltinn í hönd Marinko Skaricic eftir skot Guðjón Baldvinssonar og Magnús Þórisson dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu. Björgólfur Takefusa tók spyrnuna og skoraði örugglega.
KR-ingar byrjuðu leikinn betur og voru ekki hættir því þeir komust svo í 2-0 eftir tíu mínútna leik. Boltinn barst þá út úr teignum til Gunnars Arnar Jónssonar sem skoraði með þrumuskoti sem fór framhjá öllum varnarmönnum og markmanni Grindavíkur og í netið. Þriðja mark Gunnars í leik gegn Grindavík á þremur dögum en reyndar var hann svo óheppinn að eitt þeirra í leiknum á mánudag fór í eigið mark.
Leikurinn var mjög fjörlegur og bæði lið spiluðu léttan og skemmtilegan fótbolta og þá sér í lagi gestirnir úr Grindavík sem eru gífurlega léttleikandi og miklir skemmtikraftar á velli og með hverjum leiknum hafa þeir bætt sig í sumar.
Gilles Mbang Ondo framherji frá Gabon var í byrjunarliði Grindavíkur í kvöld og átti góðan dag og stríddi varnarmönnum KR. Hann fékk nokkur færií fyrri hálfleiknum og áður en hálfleikurinn var á enda hafði hann minnkað muninn.
Tomasz Stolpa átti þá gott skot á markið sem Pétur Hafliði Marteinsson bjargaði á marklínu en boltinn fór af honum út á Ondo sem skoraði með góðu skoti og staðan orðin 2-1. Áður en að þessu kom höfðu markmenn beggja liða varið glæsilega færi. Fyrst Zankarlo Simunic markvörður Grindavíkur skalla frá Grétari Sigfinni og svo Stefán Logi gott færi hinum megin. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir KR.
Síðari hálfleikurinn fór rólega af stað fyrstu fimm mínúturnar en svo sprakk allt út og leikurinn varð frábær til endaloka.
Fjörið byrjaði á því að Marinko Skaricic jafnaði metin fyrir Grindavík með góðum skalla eftir hornspyrnu Scott Ramsay á 52. mínútu og þremur mínútum síðar kom Óskar Örn n Hauksson KR aftur yfir. Óskar fékk þá háan bolta rétt fyrir utan vítateig Grindavíkur og með varnarmann í sér. Hann skallaði boltann í átt að teignum og hljóp svo sjálfur á eftir honum og þrumaði í markið, glæsilegt mark gegn sínum gömlu félögum.
Bæði lið skiptust á að sækja og færin komu á báða bóga og á 65. mínútu fengu Grindvíkingar gullið tækifæri til að jafna metin þegar dæmd var hendi og víti í annað sinn í leiknum, að þessu sinni í vítateig KR á Pétur Marteinsson. Scott Ramsay tók spyrnuna sem var mjög vel útfærð hjá honum og skotið fast en Stefán Logi Magnússon markvörður KR sá við honum og varði vítið frábærlega.
Þremur mínútum síðar átti Ray Anthony Jónsson þrumuskot að marki sem fór í þverslánna og Tomasz Stolpa átti svo gott skallafæri eftir sendingu frá Ondo en ekkert varð úr því.
Lokastaðan því 3-2 fyrir heimamenn í KR sem eru komnir í undanúrslit VISA-bikarsins en dregið er í hádeginu á morgun.
KR 4-4-2:
Stefán Logi Magnússon, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Pétur Hafliði Marteinsson, Jónas Guðni Sævarsson, Guðjón Baldvinsson, Óskar Örn Hauksson, Björgólfur Takefusa, Viktor Bjarki Arnarson, Skúli Jón Friðgeirsson, Gunnar Örn Jónsson (Atli Jóhannsson ’69), Guðmundur Reynir Gunnarsson.
Ónotaðir varamenn: Kristján Finnbogason, Kristinn Magnússon, Atli Jóhannsson, Ingimundur Óskarsson, Ásgeir Örn Ólafsson, Guðmundur Pétursson, Jordao Diogo.
Grindavík 4-3-3:
Zankarlo Simunic, Ray Anthony Jónsson, Scott Ramsay, Marinko Skaricic, Andri Steinn Birgisson, Jóhann Helgason, Tomasz Stolpa, Orri Freyr Hjaltalín, Zoran Stamenic, Gilles Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson.
Ónotaðir varamenn: Óskar Pétursson, Páll Guðmundsson, Eysteinn Húni Hauksson, Bogi Rafn Einarsson, Aljosa Gluhovic, Marko Valdimar Stefánsson, Alexander Veigar Þórarinsson.
Aðstæður: Nokkur vindur úr austri, 15 stiga hiti og sólar og úrkomulaust.
Maður leiksins: Guðmundur Reynir Gunnarsson, KR, lokaði vel á hinn skæða Scott Ramsay hjá Grindavík og var ógnandi upp kantinn.
Dómari: Magnús Þórisson, góður
Áhorfendur: 1189.



