Ingvar Þór Kale, markvörður og fyrirliði Víkings í Reykjavík var að vonum svekktur með tapið gegn Fjölni í VISA bikarnum í kvöld þegar Fotbolti.net heyrði hljóðið í honum.
,,Alltaf svekkjandi að tapa og þá sérstaklega 1-0. Við vissum náttúrlega að Fjölnir væri gott lið og ætluðum að halda þessu jöfnu en þurftum að liggja til baka, en það var gríðarlega sterk vörn og miðja hjá Fjölnisliðinu," sagði Ingvar í samtali við Fotbolta.net.
,,Við settum upp með það að liggja aftarlega og beita skyndisóknum, en við hefðum getað verið beittari fram á við þegar þeir skora, og þegar við settum Danna (Daníel Hjaltason) og Egil (Atlason) inn á þá bjóst ég við meiri sóknarþunga.Yfir heildina litið þá var þetta sanngjarn sigur hjá Fjölni þó svo að þetta hafði farið 1-0."
Ingvar segir Víkingana nú einbeita sér að deildinni og byrja að hala inn stigum, en hann telur liðið vera vel í toppbaráttunni.
,,Við verðum að fara að hala inn stigum í deildinni kemur ekkert annað til greina, erum búnir að tapa alltof mikið af stigum með jafnteflum og svona, og þó svo við eigum að vera í baráttunni. Níu leikir eftir, það er nóg af stigum í pottinum og við tökum bara einn leik í einu og sjáum hvernig það virkar," sagði Ingvar að lokum.




